Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 1. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 246  —  1. mál.




Framhaldsnefndarálit



um frv. til l. um stofnun opinbers hlutafélags til að stuðla að endurskipulagningu rekstrarhæfra atvinnufyrirtækja.

Frá minni hluta efnahags- og skattanefndar.



    Við 2. umræðu lögðu framsóknarmenn mikla áherslu á að breytingar yrðu gerðar á frumvarpinu er snerta skipan stjórnar félagsins. Sá málflutningur hlaut ágætar undirtektir í umræðunni og var því lýst yfir að slíkar breytingar yrðu skoðaðar í nefnd á milli 2. og 3. umræðu. Nú er það orðið ljóst að ekki á að breyta frumvarpinu og þannig mun fjármálaráðherra einn skipa stjórn félagsins.
    Ekki hefur verið tekið undir að fleiri en einn aðili skipi stjórn félagsins og ekki hefur verið fallist á að sérstök valnefnd verði ráðherra til ráðgjafar við skipan stjórnarinnar. Þessi áhersla stjórnarflokkanna er því miður til þess fallin að skapa tortryggni um hvernig staðið verði að málum gagnvart íslensku atvinnulífi næstu missirin. Mikilvægt er að forðast það fyrir alla muni að stjórnmál og viðskiptalíf fari að blandast á ný um of eins og rakið var í áliti minni hluta við 2. umræðu málsins. Af þessum ástæðum getur minni hlutinn ekki greitt frumvarpinu atkvæði.

Alþingi, 7. júlí 2009.



Birkir Jón Jónsson.