Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 90. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 247 — 90. mál.
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Ólafar Nordal um endurskipulagningu atvinnufyrirtækja á vegum bankanna.
1. Hver er afstaða ráðherra til þess hvernig til hefur tekist með endurskipulagningu atvinnufyrirtækja á vegum bankanna?
Endurskipulagning atvinnufyrirtækja á vegum bankanna er flókið og umfangsmikið verkefni og er nauðsynlegt að skýrar og sanngjarnar verklagsreglur séu hafðar að leiðarljósi. Ráðherra telur að þau viðmið sem stuðst var við þegar þróaðar voru verklagsreglur bankanna vegna endurskipulagningar atvinnufyrirtækja hafi verið eðlileg, þótt þau verði vissulega aldrei óumdeild. Við endurskipulagningu atvinnufyrirtækja virðast bankarnir taka tillit til þeirra gilda sem ríkisstjórnin telur æskileg. Opinberir verkferlar viðskiptabankanna gefa til kynna að neðangreind viðmið hafi verið höfð til hliðsjónar þegar verklagsreglur voru settar:
1. Að stuðlað sé að áframhaldandi starfsemi lífvænlegra fyrirtækja og störf séu vernduð.
2. Að áfram verði samkeppni á markaði og að aðgerðir bankanna stuðli ekki að aukinni fákeppni.
3. Að ráðinn hafi verið til starfa óháður aðili til að gegna starfi umboðsmanns viðskiptavina í hverjum banka.
4. Að vinnubrögð séu gagnsæ og sanngjörn.
5. Að bankinn byggi upp traustan og arðbæran rekstur til framtíðar.
Þó telur ráðherra rétt að undirstrika að endurskipulagningarferlinu er ekki lokið og í raun verður ekki hægt að meta endanlegan árangur endurskipulagningarinnar fyrr en eftir nokkur ár. Jafnframt ber að hafa hugfast að sú endurskipulagning atvinnufyrirtækja sem nú stendur yfir á Íslandi er eitt stærsta endurskipulagningarverkefni sem ráðist hefur verið í í Evrópu. Mikilvægt er að nýta krafta bestu sérfræðinga sem völ er á í þetta verkefni. Ráðherra telur mikilvægt að stofnað verði hlutafélag til að stuðla að endurskipulagningu rekstrarhæfra atvinnufyrirtækja, í samræmi við frumvarp fjármálaráðherra þar um, sem vinni með bönkunum, styðji þá og veiti faglega ráðgjöf við endurskipulagningu íslenskra atvinnufyrirtækja. Ráðherra telur að það sé óæskilegt og óeðlilegt að þessi endurskipulagning eða umsjón með henni sé að einhverju leyti á verksviði starfsmanna ráðuneyta, ráðherra eða Alþingis.
2. Hvernig er skipuriti og reglum NBI, Íslandsbanka og Nýja Kaupþings banka háttað vegna endurskipulagningar og yfirtöku atvinnufyrirtækja á vegum bankanna?
NBI. – Sértækar umbreytingar atvinnufyrirtækja er samheiti starfsþátta á vegum fyrirtækja-, lögfræði- og fjármálasviðs NBI og skipta sviðin verkum með sér á eftirfarandi hátt:
– Fyrirtækjaþróun á fyrirtækjasviði ber ábyrgð á stöðugreiningu, mati og tillögugerð um þörf aðgerða og framkvæmd skuldaskipulagningar og/eða umbreytingar krafna í hlutafé.
– Eignarhaldsfélög NBI á lögfræðisviði bera ábyrgð á umsýslu og ráðstöfun eignarhalds í hlutafé sem bankinn eignast vegna umbreytingar krafna í hlutafé eða vegna fullnustugjörnings samhliða því að tryggja aðskilnað á milli lánastarfsemi á vegum bankans annars vegar og eignarhalds og umsýslu bankans á hlutafé í atvinnufyrirtækjum hins vegar.
– Fyrirtækjaráðgjöf á fjármálasviði veitir þjónustu á sviði verðbréfaútgáfu, skráningar verðbréfa, sölu fyrirtækja og ráðgjöf vegna samruna og yfirtöku.
Saman mynda þessir starfsþættir heildstætt ferli og eru sem slíkir hluti af þeim ráðstöfunum sem bankinn mun beita sér fyrir vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar lífvænlegra lögaðila og þar með áframhaldandi starfsemi þeirra atvinnufyrirtækja. Ætlun NBI er að haga málum þannig að bankinn þurfi í sem fæstum tilfellum að eignast hlutabréf í atvinnufyrirtækjum vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar þeirra. Þó er ljóst að í einhverjum tilfellum verður slíkt ekki umflúið vegna fjárhagslegra hagsmuna bankans. Í þeim tilfellum leggur bankinn áherslu á að eignarhald bankans vari stutt og að við umsýslu og ráðstöfun þeirra eigna verði gætt jafnræðis og gagnsæis.
Íslandsbanki. – Hjá Íslandsbanka starfar sérstakt sérlánateymi sem annast úrvinnslu og endurskipulagningu atvinnufyrirtækja. Sérlánateymið heyrir undir lánaeftirlit bankans sem heyrir svo aftur undir framkvæmdastjóra lánaeftirlits og áhættustýringar. Reglur Íslandsbanka eru birtar á vefsvæði hans.
Nýja Kaupþing. – Hjá Nýja Kaupþingi heyrir endurskipulagning fyrirtækja undir fyrirtækjaþjónustu. Fyrirtækjaþjónustan skiptist í tvennt: annars vegar fyrirtækjaráðgjöf, sem veitir fyrirtækjum almenna ráðgjöf um kaup og sölu eigna og skipan efnahagsreiknings og hins vegar fyrirtækjalausnir sem sinna endurskipulagningarverkefnum bankans. Að auki starfar innan bankans sérstök úrlausnarnefnd sem hefur það hlutverk að móta stefnu úrlausnarmála og gæta þess að svipuð mál fái sambærilega meðhöndlun. Verklagsreglur bankans eru birtar á heimasíðu bankans. Þá skal bent á að umboðsmaður viðskiptavina heyrir beint undir stjórn bankans og gefur reglulegar skýrslur um framgang vinnunnar.
3. Hafa verið stofnuð eignarhaldsfélög í öllum framangreindum bönkum til að halda utan um endurskipulagningu atvinnufyrirtækja í viðskiptum við þá? Ef svo er ekki, hvernig er skipulagi þessarar starfsemi háttað í viðkomandi banka?
Allir framangreindir bankar hafa stofnað að minnsta kosti tvö eignaumsýslufélög. Annars vegar er félag til að halda utan um eignarhald viðkomandi banka á fasteignum og hins vegar hafa verið stofnuð félög sem fara með eignarhald viðkomandi banka á hlutum í öðrum rekstrarfélögum.
4. Hvernig er yfirstjórn þessara félaga háttað og hverjir eru í forsvari fyrir félögin?
Hjá NBI er stjórn félaganna tveggja skipuð bankastjóra NBI, framkvæmdastjóra lögfræðisviðs bankans og framkvæmdastjóra fjármálasviðs hans. Framkvæmdastjórar félaganna eru annars vegar Helgi S. Gunnarsson og hins vegar Steinþór Baldursson. Bæði félögin eru að setja sér sérstakar vinnureglur um meðferð og umsýslu eignarhluta sem félögin kunna að eignast á grundvelli skuldbreytinga bankans vegna fullnustugjörninga. Reglurnar verða kynntar opinberlega innan tíðar.
Hjá Nýja Kaupþingi eru stjórnir beggja félaganna óháðar bankanum.
Hjá Íslandsbanka liggja ekki að svo stöddu fyrir upplýsingar um yfirstjórn og forsvarsmenn eignaumsýslufélaganna enda eru félögin nýstofnuð og hefur ekki verið auglýst eftir framkvæmdastjórum fyrir félögin.
5. Hafa félög þessi gefið út reglur um hvernig haga skuli endurskipulagningu atvinnufyrirtækja á þeirra vegum? Ef svo er, eru reglurnar opinberar? Ef svo er ekki, hvers vegna ekki?
NBI telur að starfsemi eignarhaldsfélaganna sé óaðskiljanlegur hluti þeirra ráðstafana sem bankinn mun beita sér fyrir í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu atvinnufyrirtækja. Mun bankinn setja reglur um starfsemi þeirra sem brátt verða kynntar opinberlega. Bankinn hefur þegar kynnt opinberlega aðgerðir vegna greiðsluerfiðleika fyrirtækja.
Hjá Kaupþingi og Íslandsbanka fer endurskipulagning fyrirtækja að mestu fram innan bankans og báðir bankar hafa birt skýrar verklagsreglur á sínum heimasíðum. Kaupþing stefnir að því að birta endurbættar reglur innan tíðar.
6. Koma Fjármálaeftirlitið og, eftir atvikum, viðskiptaráðuneyti að þessum reglum, t.d. með staðfestingu sinni?
Bankarnir hafa í einhverjum tilvikum leitað eftir leiðbeiningum varðandi smíði reglnanna til Fjármálaeftirlitsins.
7. Eru reglurnar samræmdar á milli viðkomandi banka? Ef svo er ekki, hyggst ráðherra beita sér fyrir því?
Reglurnar hafa ekki verið samræmdar sérstaklega á milli banka. Ráðherra mun ekki beita sér sérstaklega fyrir því að verklagsreglur séu nákvæmlega samræmdar á milli banka. Ráðherra telur það mikilvægt að sanngirni sé gætt í verklagsreglum bankanna gagnvart fyrirtækjum og markaði og að verklagsreglur þeirra endurspegli þau gildi sem talin eru upp í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar. Jafnframt skuli verklagsreglur bankanna þriggja endurskoðaðar ef þörf krefur til að endurspegla þau gildi sem munu koma fram í eigendastefnu ríkisins þegar hún verður birt á næstunni.
8. Verði frumvarp fjármálaráðherra um stofnun hlutafélags til að stuðla að endurskipulagningu þjóðhagslegra mikilvægra fyrirtækja samþykkt, sbr. 1. mál þessa þings, telur ráðherra þá ástæðu til að leggja framangreind eignarhaldsfélög niður eða samræma þau nánar að þeirri lagasetningu?
Ráðherra telur enga ástæðu til að leggja framangreind eignarhaldsfélög niður verði frumvarp fjármálaráðherra um hlutafélag til að stuðla að endurskipulagningu atvinnufyrirtækja samþykkt. Slíkt félag í eigu ríkisins er hugsað sem viðbót og stuðningur við eignaumsýslufélög bankanna þriggja en ekki til að koma í staðinn fyrir það starf sem þegar er hafið í bönkunum.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 247 — 90. mál.
Svar