Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 142. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 319 — 142. mál.
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um niðurfærslu skulda.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hyggst ráðherra beita sér á einhvern hátt fyrir því að afskriftir sem fara á milli gömlu og nýju bankanna gangi að einhverju leyti til skuldaranna, þ.e. að skuldir verði færðar niður? Ef ekki, þá hvers vegna ekki?
Viðskiptaráðherra vill í upphafi taka fram að stjórnvöld hafa stuðlað að ýmsum úrræðum til að koma til móts við þá sem lent hafa í eða eru við það að lenda í greiðsluerfiðleikum. Má í því sambandi nefna greiðslujöfnun verðtryggðra og gengistryggðra húsnæðislána, greiðsluaðlögun óveðtryggðra skulda og tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna. Einnig hafa stjórnvöld gert samning við lánveitendur fasteignaveðlána um að þeir beiti sömu greiðsluvandaúrræðum vegna fasteignaveðlána og Íbúðarlánasjóður.
Það er bankanna að taka ákvörðun um það hvort þeir breyti útistandi kröfum með einhverjum hætti, umfram það sem stjórnvöld hafa kveðið á um, sbr. umfjöllun hér að framan. Slíka ákvörðun tekur banki á grundvelli mats á greiðslugetu skuldara. Ráðherra telur það ekki í sínum verkahring að taka fram fyrir hendur bankanna við þessar ákvarðanir. Verði Íslandsbanki og Nýja Kaupþing að miklum meiri hluta í eigu annars vegar Glitnis og hins vegar Kaupþings þá breytir það í grundvallaratriðum þýðingu verðmats eigna sem færðar voru frá gömlu bönkunum til þeirra nýju. Gangi þetta eftir verður stjórn bankanna jafnframt ekki í höndum íslenska ríkisins. Þegar af þeirri ástæðu mun viðskiptaráðherra ekki beita sér fyrir því að afskriftir gangi að einhverju leyti til skuldara, að því er varðar þá banka.
Ráðherra hefur áður lýst þeirri einörðu afstöðu sinni að ekki sé skynsamlegt að mæla fyrir um tiltekna almenna afskrift skulda. Slíkt leiðir til þess að þeir sem þurfa ekki á því að halda fá niðurfelldar skuldir og um leið verður ekki svigrúm til að koma til móts við þá sem hafa þörf fyrir það. Ráðherra telur því rétt að bankar beiti þeirri aðferðarfræði, sem þeir hafa alltaf gert, að meta hvern skuldara út frá því hversu mikið hann getur greitt af skuld sinni. Með þeim hætti munu afskriftirnar í raun ganga til þeirra skuldara sem þurfa á því að halda.
Einnig hefur ráðherra áður lýst þeirri skoðun að mikilvægt sé að bankarnir hafi samkeppnissjónarmið til hliðsjónar þegar þeir reyna að greiða úr vanda fyrirtækja. Horfa verði til til þeirra hagsmuna sem neytendur geta haft af því að fyrirtæki í samkeppni geti starfað áfram og þeim fækki ekki, sbr. álit Samkeppniseftirlitins þar að lútandi frá 12. nóvember 2008.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 319 — 142. mál.
Svar