Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 158. máls.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 333 — 158. mál.
forsætisráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um uppbyggingu á Þingvöllum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hver er stefna ráðherra í uppbyggingu þjónustu á svokölluðum Valhallarreit á Þingvöllum eftir hinn hörmulega bruna föstudaginn 10. júní sl.?
2. Hver er stefna ráðherra í uppbyggingu þjónustu á Þingvöllum, þ.m.t. veitinga- og gistiþjónustu?
3. Hyggst ráðherra breyta fyrirkomulagi yfirstjórnar þjóðgarðsins á Þingvöllum? Ef svo er, með hvaða hætti?
Árið 2005 fól þáverandi forsætisráðherra Þorsteini Gunnarssyni arkitekt og Ríkharði Kristjánssyni verkfræðingi að gera úttekt á ástandi húsnæðis Hótel Valhallar á Þingvöllum og leggja fram hugmyndir sem snúa að framtíðarstarfsemi staðarins. Í skýrslu sem þeir skiluðu þáverandi forsætisráðherra í janúar 2006 er gerð grein fyrir byggingarsögu húsanna. Þá er gerð grein fyrir menningarsögulegu og listrænu gildi Valhallar. Loks eru reifaðir fjórir mismunandi möguleikar á framtíðarskipan Valhallar og farið yfir kosti þeirra og galla.
Hugmyndir skýrsluhöfunda varðandi framtíðarstarfsemi staðarins voru þær að Valhöll yrði öll eða að hluta rifin og reist ný bygging á grunni hennar í samræmi við þarfalýsingu sem unnin yrði í samráði við hagsmunaaðila. Áhersla var lögð á að framkvæmdin yki hið sérstaka gildi sem Þingvellir hafa og stuðlaði að ánægjulegri dvöl þeirra sem heimsækja þjóðgarðinn. Enn fremur lögðu þeir til að efnt yrði til opinnar samkeppni um hönnun hússins í samræmi við samkeppnisreglur Arkitektafélags Íslands. Yrði annaðhvort gengið út frá algerri nýbyggingu eða varðveittu framhúsi gömlu Valhallar að viðbættri nýbyggingu.
Á grundvelli skýrslunnar samþykkti þáverandi ríkisstjórn í ársbyrjun 2006 að láta fara fram þarfalýsingu um framtíðarskipan Valhallar sem unnin yrði í samráði við hagsmunaaðila, svo sem Þingvallanefnd, skrifstofu forseta Alþingis, Biskupsstofu, sveitarstjórn Bláskógabyggðar og rekstraraðila Hótel Valhallar. Var Þorsteini Gunnarssyni falin forusta um gerð þarfalýsingarinnar. Eftir ráðherraskipti um mitt ár 2006 varð ekki framhald á vinnu við gerð þarfalýsingar.
Þingvallanefnd mótaði framtíðarstefnu fyrir þjóðgarðinn árið 2004 þegar hann var skráður á heimsminjaskrá UNESCO. Í henni er gert ráð fyrir aðstöðu til mannamóta á þeim stað þar sem Valhöll hefur staðið, en takmörkuðu gistirými. Allar breytingar á forsendum stefnumörkunar Þingvallanefndar yrði væntanlega að kynna UNESCO.
Talið er að rekstrarhæft hótel á Þingvöllum þurfi að hafa yfir að ráða allt að 80 gistiherbergjum. Umfang sem fylgir hótelrekstri rúmast því vart á Valhallarreitnum auk þess sem ólíklegt er að ríkið muni byggja upp aðstöðu fyrir hótelrekstur á Þingvöllum.
Bæjarstæði Valhallar er á viðkvæmum stað með tilliti til landsigs og Þingvallavatns og mikilvægis verndunar þess. Ef til kæmi að samþykkt yrði að reisa samkomuvettvang á vegum ríkisins á Þingvöllum kemur til greina, auk Valhallarreitsins, að húsinu yrði valinn staður fjær vatninu, t.d. á Völlunum fyrir norðan þinghelgina. Í húsinu mætti gera ráð fyrir veitingaaðstöðu, aðstöðu fyrir minni ráðstefnur á vegum ríkisins, aðstöðu fyrir Alþingi og e.t.v. lítils háttar gistiaðstöðu. Ólíklegt er að afkoma ríkissjóðs leyfi byggingu af þessum toga á næstu árum.
Þingvellir eru helgistaður þjóðarinnar þar sem stærstu samkomur sem tengjast sögu þjóðarinnar hafa verið haldnar. Eðlilegt er að forsætisráðuneytið og Alþingi hafi yfirumsjón með skipulagningu og framkvæmd slíkra hátíða. Sérstaða Þingvalla er fyrst og fremst söguleg og menningarleg. Þingvellir hafa öðlast viðurkenningu á heimsminjaskrá UNESCO vegna hins forna þings sem stofnað var á Þingvöllum árið 930 og stóð þar óslitið til aldamótanna 1800. Forsætisráðuneytið og Þingvallanefnd, sem kjörin er af Alþingi, fara með málefni Þingvalla og þjóðgarðsins. Ekki er talin ástæða til að gera breytingu á því.
Mikilvægt er að nýskipuð Þingvallanefnd taki til umfjöllunar framtíð Þingvalla, m.a. í ljósi hins hörmulega bruna 10. júlí sl., og kynni sér fyrirliggjandi ítarlegar greinargerðir um staðinn. Mikilvægt er að hin nýja nefnd leiti eftir sjónarmiðum sem flestra í þeirri umfjöllun og þá ekki síst heimamanna.
137. löggjafarþing 2009.
Þskj. 333 — 158. mál.
Svar