Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 31. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 31  —  31. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um strandveiðar.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hver var afli svokallaðra strandveiðibáta í sumar, í allt og skipt eftir veiðisvæðum?
     2.      Hve margir bátar voru skráðir til þessara veiða í sumar, skipt eftir veiðisvæðum?
     3.      Hversu margir þeirra lönduðu afla á umræddu tímabili?
     4.      Hversu marga daga var afla landað af strandveiðibátum, skipt eftir veiðisvæðum?
     5.      Hve miklum afla lönduðu strandveiðibátar í tíu stærstu löndunarhöfnunum og hve mikill hluti var það af lönduðum heildarbolfiskafla í umræddum höfnum á síðasta fiskveiðiári? Svar óskast sundurliðað eftir einstökum löndunarhöfnum.
     6.      Hve mikill hluti aflans fór til vinnslu í þeim höfnum sem landað var?


Skriflegt svar óskast.