Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 31. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 80  —  31. mál.




Svar



sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar um strandveiðar.

     1.      Hver var afli svokallaðra strandveiðibáta í sumar, í allt og skipt eftir veiðisvæðum?
     2.      Hve margir bátar voru skráðir til þessara veiða í sumar, skipt eftir veiðisvæðum?
     3.      Hversu margir þeirra lönduðu afla á umræddu tímabili?
     4.      Hversu marga daga var afla landað af strandveiðibátum, skipt eftir veiðisvæðum?


    Í eftirfarandi töflu eru umbeðnar upplýsingar, sundurliðaðar eftir veiðisvæðum og samtals af öllum svæðum:
Svæði A Svæði B Svæði C Svæði D Öll svæði
Fjöldi veiðileyfa 199 102 124 170 595
Fjöldi báta með afla 191 94 115 154 554
Fjöldi löndunardaga 32 51 55 52 57
Þorskur 1.519.760 591.344 954.543 386.668 3.452.314
Ýsa 136 8.771 11.952 595 21.455
Ufsi 74.946 132.714 130.379 236.302 574.342
Lýsa 121 69 105 12.999 13.294
Gullkarfi 2.432 9.922 2.857 24.563 39.774
Langa 49 0 1.715 1.764
Keila 19 16 48 1.253 1.336
Steinbítur 24 183 933 73 1.214
Hlíri 12 13 26
Skötuselur 2 2
Lúða 3 24 147 174
Makríll 61 39 513 613
Geirnyt 13 23 35
Litlikarfi 5 9 14
Djúpkarfi 38 38
Stóri bramafiskur 43 43
Afli samtals 1.597.551 743.044 1.100.936 664.905 4.106.437
         

     5.      Hve miklum afla lönduðu strandveiðibátar í tíu stærstu löndunarhöfnunum og hve mikill hluti var það af lönduðum heildarbolfiskafla í umræddum höfnum á síðasta fiskveiðiári? Svar óskast sundurliðað eftir einstökum löndunarhöfnum.
              Eftirfarandi tafla sýnir 10 stærstu löndunarhafnirnar í heildarafla (magn í kg):
Höfn Strandveiðar Heild Hlutfall
Reykjavík 74.113 62.221.722 0,1%
Grindavík 88.347 34.683.563 0,3%
Vestmannaeyjar 38.450 20.296.368 0,2%
Rif 195.247 16.599.733 1,2%
Hafnarfjörður 70.266 15.871.011 0,4%
Sandgerði 168.685 15.068.433 1,1%
Þorlákshöfn 2.827 13.634.605 0,0%
Ólafsvík 186.692 13.346.529 1,4%
Neskaupstaður 62.418 11.783.006 0,5%
Ísafjörður 87.553 11.255.481 0,8%

    Eftirfarandi tafla sýnir þær 10 hafnir þar sem mestu magni var landað af afla veiddum af strandveiðibátum (magn í kg):
Höfn Strandveiðar Heild Hlutfall
Bolungarvík 219.027 10.229.519 2,1%
Grímsey 207.551 3.079.297 6,7%
Patreksfjörður 195.808 5.262.961 3,7%
Rif 195.247 16.599.733 1,2%
Ólafsvík 186.692 13.346.529 1,4%
Dalvík 176.972 8.590.792 2,1%
Húsavík 168.788 3.478.347 4,9%
Sandgerði 168.685 15.068.433 1,1%
Siglufjörður 157.670 8.967.639 1,8%
Stöðvarfjörður 157.475 2.845.670 5,5%

    Eftirfarandi tafla sýnir þær 10 hafnir þar sem hlutfall afla strandveiðibáta var hæst, sem hlutfall af heildarafla lönduðum í höfninni (magn í kg):
Höfn Strandveiðar Heild Hlutfall
Skarðsstöð 2.670 2.670 100,0%
Breiðdalsvík 68.604 76.678 89,5%
Mjóifjörður 3.171 8.231 38,5%
Brjánslækur 23.305 62.246 37,4%
Norðurfjörður 18.937 62.355 30,4%
Bakkafjörður 154.599 660.112 23,4%
Raufarhöfn 101.140 876.070 11,5%
Kópasker 41.034 368.818 11,1%
Borgarfjörður eystri 56.128 567.515 9,9%
Vopnafjörður 51.487 558.062 9,2%

     6.      Hve mikill hluti aflans fór til vinnslu í þeim höfnum sem landað var?
    Upplýsingar hvað varðar þennan lið liggja ekki fyrir að svo stöddu. Gert er ráð fyrir, á grundvelli úrvinnslu gagna úr vigtar- og ráðstöfunarskýrslum (VOR), að upplýsingar þessar liggi fyrir undir lok nóvember nk.