Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 92. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 94  —  92. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um reglubundna opna borgarafundi.

Flm.: Davíð Stefánsson, Lilja Mósesdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
Birgitta Jónsdóttir, Þór Saari, Magnús Orri Schram, Ólína Þorvarðardóttir,
Björn Valur Gíslason, Ásmundur Einar Daðason, Ögmundur Jónasson,
Björgvin G. Sigurðsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.

    
    Alþingi ályktar að fela dómsmála- og mannréttindaráðherra að skipa starfshóp til að móta umgjörð um opna og reglubundna borgarafundi þar sem alþingismenn og almennir borgarar skiptast á skoðunum. Starfshópurinn meti, að viðhöfðu samráði við grasrótarsamtök og félagasamtök, kosti og galla þess að hið opinbera eigi beina aðkomu að slíkum fundum, skoði leiðir til að tryggja öllum landsmönnum aðgang að fundunum með beinum útsendingum í útvarpi og á netinu, meti leiðir til heppilegrar fjármögnunar og finni þessu beina samtali þings og þjóðar eðlilegan og hlutlausan farveg. Ráðherra leggi skýrslu og tillögur um efnið fyrir Alþingi eigi síðar en 1. febrúar 2010.

Greinargerð.


    Tillögu þessari er ætlað að fela dómsmála- og mannréttindaráðherra að mynda starfshóp sem kanni hvaða leiðir eru færar til að koma á reglubundnum opnum borgarafundum í samstarfi við grasrótarsamtök og meta hvort þörf er á lagasetningu um slíka fundi. Þá er gert ráð fyrir að ráðherra skili Alþingi skýrslu um efnið og tillögum að aðgerðum eða lagabreytingum eigi síðar en 1. febrúar 2010.
    Sérstök áhersla er lögð á að borgarafundirnir séu reglubundnir og almennir en ekki bundnir við sérstök málefni eða tilefni, enda færi þar fram fjölbreytilegt samtal á milli tveggja hópa, þeirra fáu sem eru handhafar valdsins og þeirra fjölmörgu sem eru það ekki. Samkvæmt 48. gr. stjórnarskrár eru þingmenn eingöngu bundnir við sannfæringu sína en ekki við reglur frá kjósendum sínum og því er ekki ætlunin að skylda þá til að sitja slíka fundi. Með því að hið opinbera komi að framtakinu væri hins vegar ýtt undir að líta mætti á slíka fundi sem sjálfsagðan þátt í starfi þingmanna.
    Til að hér á landi þrífist málefnaleg og uppbyggileg umræða um stjórnmál og samfélag þarf a.m.k. tvennt: Að stjórnmálamenn leggi sig fram um að vera í góðum tengslum við hug kjósenda hverju sinni og að almenningur láti sjálfur til sín taka með beinni þátttöku. Á báðar þessar hliðar hefur skort, einkum fyrir efnahagshrunið, enda vöknuðu þar ýmsir upp við vondan draum. Reglubundnir opnir borgarafundir, með föstum dagsetningum í samhengi við starfsáætlun Alþingis, mundu skapa nýtt en nauðsynlegt aðhald, bæði fyrir stjórnmálamenn og almenning.
    Flestir stjórnmálamenn sinna starfi sínu með ágætum, mæta á hvers kyns fundi, gera grein fyrir störfum sínum og hlusta á hugmyndir almennra borgara og félagsmanna í ýmsum hagsmunasamtökum. Fundir af þessu tagi, stundum um afmörkuð málefni, eru iðulega haldnir af stjórnmálaflokkunum og þar með á þeirra forsendum. Meðal annars vegna smæðar samfélagsins er aðgengi almennings að kjörnum fulltrúum sínum með ágætum hér á landi. En lengi má gott bæta og markmiðið með þingsályktunartillögur þessari er að kanna möguleikann á því að skapa vettvang þar sem allir mæta jafnir til leiks, bæði kjörnir fulltrúar og almenningur; vettvang þar sem fram fer hreinskiptið samtal um málefni líðandi stundar.
    Vantraust almennings í garð stjórnmálamanna er ein af mörgum þungbærum afleiðingum efnahagshrunsins sem dundi yfir þjóðina í október 2008. Í kjölfar þess spruttu upp fjölmörg grasrótarsamtök sem kröfðust lýðræðisumbóta og kölluðu eftir beinni ábyrgð stjórnmálamanna. Opnir borgarafundir, sem voru m.a. haldnir í Iðnó og Háskólabíói, kölluðu fram annars konar samtal en áður hafði farið fram. Fundirnir voru hnitmiðaðir, beinskeyttir og vel sóttir, og ýmsar upplýsingar komu þar fram í dagsljósið sem ella hefðu ekki gert það.
    Í umræðu um þrískiptingu ríkisvaldsins hefur oftar en ekki verið bent á fjölmiðla sem fjórða valdhafann, enda eigi þeir með gagnrýnni og vandaðri umræðu að geta upplýst almenning og með því verið mótvægi við aðra valdhafa. Því miður olli efnahagshrunið einnig miklu vantrausti í garð fjölmiðlanna, og þannig mætti halda því fram að almennur borgari sem vill uppfræðast og taka þátt í lýðræðislegri umræðu eigi í fá hús að venda þegar hann treystir hvorki fjölmiðlum né stjórnmálamönnum. Þessi vandi yrði að sjálfsögðu ekki leystur að fullu með reglubundnum opnum borgarafundum, en það væri þó skref í rétta átt ef horfst yrði í augu við þennan vanda með því að samþykkja tillögu þessa.
    Þrátt fyrir gott aðgengi að efni þingsins horfa fæstir á útsendingar af þingfundum alla daga. Fjölmiðlar stýra því að miklu leyti hvað almenningur er upplýstur um en með opnum borgarafundum skapast nýr samráðs- og samræðugrundvöllur þar sem allir geta komið með sitt að borðinu. Fundir af þessu tagi eru vissulega ekki nýir af nálinni en efnahagshrunið og afleiðingar þess hafa att mönnum í meira mæli til að nýta þetta form fyrir lýðræðislega og beinskeytta umræðu.
    Lögð er áhersla á að skoðuð verði ýmis afmörkuð atriði og í lok þessarar greinargerðar eru nokkur þeirra talin upp. Til að mynda er gert ráð fyrir að reynslan af slíkum fundum hér á landi og erlendis verði metin og einnig þörfin á því að setja umgjörð um og skapa reglu um slíka fundi með tilliti til lýðræðisumbóta og borgaralegra og stjórnmálalegra réttinda Íslendinga allra. Vegna þessa þarf aukinheldur að huga að því hvernig hægt sé að tryggja aðgang landsmanna allra, t.d. með útsendingu fundanna í útvarpi, sjónvarpi og á neti. Vegna eðlis opinna borgarafunda og þeirrar tengingar sem þeir hafa gjarnan við grasrótarsamtök ýmiss konar er lögð áhersla á að skoða kosti þess að fela óháðum aðila yfirumsjón með framkvæmd fundanna, þó með blessun opinberra aðila (t.d. mannréttindaráðuneytis) og í fullu samráði við þá. Aðkoma opinbers aðila mundi gefa fundaröðinni nauðsynlegt vægi gagnvart stjórnmálamönnunum, en tengingin við grasrótina yrði þó til þess að fundirnir yrðu í raun hlutlaus vettvangur en ekki eiginlegt framtak af hálfu hins opinbera.
    Lagt er til að starfshópurinn skoði sérstaklega fjármögnunarhlið verkefnisins. Bæði má færa rök fyrir því að hið opinbera standi straum af öllum kostnaði við fundaröð af þessu tagi og að hið opinbera eigi alls ekki að leggja fé til framtaks af þessum toga. Þetta þarf að meta frá öllum hliðum.
    Markmiðið með þingsályktunartillögunni er að hið opinbera taki þátt í að breikka samtalsgrundvöll þings og þjóðar. Það er auðvelt fyrir kjörna fulltrúa að hunsa óreglubundna fundi grasrótarsamtaka, en ef fundaröð af þeirri gerð sem hér er lögð til hefur hlotið hálfgildings blessun mannréttindaráðuneytis fær hún efalítið meira vægi.
    Því er beint til starfshópsins að hann taki eftirfarandi atriði sérstaklega til skoðunar:
     1.      Hvort hlutlaus samtök geti fengið umboð frá opinberum aðila (t.d. mannréttindaráðuneyti) til að reka opna borgarafundi.
     2.      Hvort hið opinbera taki þátt í fjármögnun verkefnisins:
                  a.      að fullu leyti,
                  b.      að hluta,
                  c.      taki ekki þátt í fjármögnun,
                  d.      taki óbeint þátt, t.d. með því að útvega húsnæði, annast útsendingu á fundum (RÚV) eða með því að vista og geyma gögn sem tengjast efni fundanna (sbr. 6. lið).
     3.      Að í pallborði verði sitjandi ráðherrar og formenn eða varaformenn allra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi, auk þess sem aðrir kjörnir fulltrúar fái boð á fundina.
     4.      Að í upphafi hvers þings séu settir niður fastir fundartímar, einu sinni í mánuði, að höfðu samráði við forseta Alþingis, enda verði fundirnir óformlegur hluti af starfsáætlun Alþingis og störfum kjörinna fulltrúa.
     5.      Að tiltekinn fjöldi borgarafunda ár hvert fari fram á landsbyggðinni.
     6.      Að allir opnir borgarafundir verði sendir út í útvarpi og á netinu, þeir varðveittir í tölvutæku formi og gerðir aðgengilegir á heimasíðu mannréttindaráðuneytis og/eða Alþingis.