Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 108. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 114  —  108. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um úttekt á gerð göngubrúar yfir Ölfusá við Selfoss.

Flm.: Unnur Brá Konráðsdóttir, Árni Johnsen, Ragnheiður E. Árnadóttir,


Björgvin G. Sigurðsson, Guðrún Erlingsdóttir, Anna Margrét Guðjónsdóttir,
Eygló Harðardóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Margrét Tryggvadóttir, Atli Gíslason.


    Alþingi ályktar að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að láta meta kosti þess að gera göngubrú yfir Ölfusá við Selfoss og meta kostnað við slíka framkvæmd. Úttekt á framkvæmdinni og kostnaðarmat liggi fyrir 1. mars 2010.

Greinargerð.


    Tillaga þessi var áður flutt á 132. löggjafarþingi (38. mál) og 133. löggjafarþingi (46. mál). Með henni er lagt til að Alþingi feli samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að láta meta kosti þess að gera göngubrú yfir Ölfusá við Selfoss og meta kostnað við slíka framkvæmd. Lagt er til að úttektin og kostnaðarmat liggi fyrir 1. desember 2009.
    Þegar Ölfusá var brúuð við Selfoss myndaðist strax byggð sunnan árinnar og þar er meginíbúðarbyggðin nú auk þess sem aðalatvinnustarfsemin hefur verið sunnan árinnar. Þó hefur alla tíð verið nokkur íbúðarbyggð norðan Ölfusár og má ætla að um 200 íbúar sem tilheyra Selfossi búi þar, auk íbúa úr Árbæjarbyggð í Ölfusi. Atvinnurekstur hefur einnig verið norðan árinnar í fjölda ára og hefur Sláturfélag Suðurlands verið fjölmennasti vinnustaðurinn. Hin síðari ár hefur atvinnurekstur norðan Ölfusár aukist og ætla má að nú séu um 250–300 störf í þeim fjölbreyttu fyrirtækjum sem starfrækt eru á svæðinu. Þá hefur sveitarfélagið Árborg skipulagt stærra svæði norðan Ölfusár fyrir atvinnustarfsemi. Einnig má benda á að Hellisskógur, sem er eitt aðalútivistarsvæði Selfoss, er einmitt norðan Ölfusár.
    Með síaukinni umferð um Ölfusárbrú, ekki hvað síst þungaflutningum, er ljóst að þrengt hefur verið að gangandi umferð á brúnni. Því miður hafa oftsinnis orðið óhöpp við handrið sem aðskilur gangandi vegfarendur og ökutæki á Ölfusárbrú en hingað til hafa ekki orðið slys á fólki í þessum óhöppum.
    Nú hefur um alllangt skeið legið fyrir í aðalskipulagi að ný brú yrði byggð yfir Ölfusá við Laugardæli og þar með yrði þungaflutningum beint norður og austur fyrir Selfoss. Þessi brú er enn ekki komin á samræmda samgönguáætlun, en vegna mikillar umferðaraukningar mun þess líklega ekki langt að bíða. Þar sem ný brú við Laugardæli er ekki væntanleg allra næstu ár má ætla að göngubrú yfir Ölfusá við Selfoss sé brýnt verkefni þar sem umferð gangandi vegfarenda hefur aukist og mun aukast verulega á næstu árum.