Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 60. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 125  —  60. mál.




Svar


fjármálaráðherra við fyrirspurn Unnar Brár Konráðsdóttur um fjölda starfa hjá ríkinu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hefur verið fjöldi starfa hjá ríkinu, þ.e. þar sem Fjársýsla ríkisins er launagreiðandi, ár hvert frá 2005 í hverju skattumdæmi fyrir sig, sundurliðað í:
     a.      störf innan menntakerfis,
     b.      störf í löggæslu,
     c.      störf innan heilbrigðiskerfis,
     d.      störf við stjórnsýslu, og
     e.      önnur störf?


    Í október árið 2005 voru 16.000 stöðugildi hjá ríkinu og í september í ár var fjöldi stöðugilda hjá ríkinu 17.700. Eftirfarandi er yfirlit yfir fjölda starfa hjá ríkinu á tímabilinu 2005– 2009, sundurliðað í störf innan heilbrigðiskerfis, í löggæslu, innan menntakerfis, við stjórnsýslu og önnur störf.
    Á árinu 2006 færði stærsti hluti heilbrigðisstofnana launaafgreiðslu sína yfir til ríkisins, eða sem samsvarar um 1.500 stöðugildum. Þessarar breytingar verður fyrst vart á því ári en þá fjölgar störfum í heilbrigðiskerfinu í öllum skattumdæmum landsins.
    Breytingar voru gerðar á lögreglulögum, nr. 90/1996, árið 2006 og var lögregluumdæmum þá fækkað í 15. Þessi breyting hefur áhrif á fjölda stöðugilda innan löggæslunnar sem og í öðrum störfum.

Fjöldi stöðugilda hjá ríkinu eftir skattumdæmum,
október 2005–2008, september 2009.

2005 2006 2007 2008 2009
    Austurlandsumdæmi 218 459 487 460 458
Störf innan heilbrigðiskerfis 232 247 258 260
Störf í löggæslu 22 27 27 25 20
Störf innan menntakerfis 69 72 81 89 90
Önnur störf 127 128 132 88 88
    Norðurlandsumdæmi eystra 561 714 1.178 1.207 1.166
Störf innan heilbrigðiskerfis 9 164 647 650 623
Störf í löggæslu 49 42 43 46 49
Störf innan menntakerfis 430 433 413 432 416
Önnur störf 73 75 75 79 78
    Norðurlandsumdæmi vestra 133 309 319 324 316
Störf innan heilbrigðiskerfis 169 173 171 167
Störf í löggæslu 16 17 16 17 17
Störf innan menntakerfis 94 92 95 104 97
Önnur störf 23 31 35 32 35
    Reykjanesumdæmi 1.370 1.735 1.722 1.509 1.558
Störf innan heilbrigðiskerfis 184 369 373 390 395
Störf í löggæslu 98 105 232 223 92
Störf innan menntakerfis 364 387 397 404 428
Önnur störf 724 874 720 492 643
    Reykjavíkurumdæmi 12.846 13.013 13.201 13.048 12.525
Störf innan heilbrigðiskerfis 4.120 4.390 4.472 4.442 4.250
Störf í löggæslu 446 461 555 514 497
Störf innan menntakerfis 2.025 1.997 2.173 1.960 1.897
Önnur störf 5.775 5.688 5.523 5.628 5.370
Störf við stjórnsýslu 480 477 478 504 511
    Suðurlandsumdæmi 321 491 516 511 518
Störf innan heilbrigðiskerfis 27 189 199 242 238
Störf í löggæslu 39 38 36 37 35
Störf innan menntakerfis 86 89 96 94 96
Óflokkað 169 175 185 138 149
    Vestfjarðaumdæmi 152 322 329 346 334
Störf innan heilbrigðiskerfis 28 204 204 212 209
Störf í löggæslu 22 22 24 26 22
Störf innan menntakerfis 37 33 32 35 29
Önnur störf 65 63 69 73 74
    Vestmannaeyjaumdæmi 54 125 130 133 125
Störf innan heilbrigðiskerfis 72 76 77 73
Störf í löggæslu 13 12 10 10 9
Störf innan menntakerfis 25 25 29 30 29
Önnur störf 16 16 15 16 14
    Vesturlandsumdæmi 401 560 665 705 701
Störf innan heilbrigðiskerfis 31 124 203 204 238
Störf í löggæslu 34 29 37 30 26
Störf innan menntakerfis 218 217 233 242 229
Önnur störf 118 190 192 229 208
Samtals 16.057 17.728 18.547 18.243 17.701