Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 62. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 127  —  62. mál.




Svar


dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn Unnar Brár Konráðsdóttur um beiðnir um heimild til greiðsluaðlögunar.

     1.      Hversu margar beiðnir um heimild til að leita greiðsluaðlögunar, sbr. lög nr. 24/2009, hafa verið teknar fyrir hjá héraðsdómstólum landsins? Hversu margar slíkar beiðnir hafa verið samþykktar og hversu mörgum hafnað?
    Alls hafa 318 beiðnir um nauðasamninga til greiðsluaðlögunar borist héraðsdómstólunum, þar af eru 77 óafgreiddar. Af þeim beiðnum sem lokið er við að afgreiða hafa 215 verið samþykktar og 14 verið hafnað. Þá hafa 5 beiðnir verið afturkallaðar.
    Sjá eftirfarandi töflu og skiptingu eftir dómstólum en allar tölur eru miðaðar við 15. október 2009.

Beiðnir um nauðasamninga til greiðsluaðlögunar
til og með 15. október 2009.

Fjöldi
beiðna
Samþykkt Hafnað Aftur-
kallað
Óafgreitt
Héraðsdómur Reykjavíkur 144 101 9 5 29
Héraðsdómur Vesturlands 11 9 2
Héraðsdómur Vestfjarða 6 6
Héraðsdómur Norðurlands vestra 2 2
Héraðsdómur Norðurlands eystra 16 14 2
Héraðsdómur Austurlands 8 8
Héraðsdómur Suðurlands 19 14 5
Héraðsdómur Reykjaness 112 61 3 7 41
Samtals 318 215 14 12 77


     2.      Hversu margar beiðnir um heimild til tímabundinnar greiðsluaðlögunar fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði, sbr. lög nr. 50/2009, hafa verið teknar fyrir hjá héraðsdómstólum landsins? Hversu margar slíkar beiðnir hafa verið samþykktar og hversu mörgum hafnað?
    Alls hafa 78 beiðnir borist héraðsdómstólunum um greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna, þar af eru 29 óafgreiddar. Af þeim beiðnum sem lokið er við að afgreiða hafa 42 verið samþykktar, engri hafnað en 7 beiðnir hafa verið afturkallaðar.
    Sjá eftirfarandi töflu og skiptingu eftir dómstólum en allar tölur eru miðaðar við 15. október 2009.

Beiðnir um greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
til og með 15. október 2009.

Fjöldi beiðna Samþykkt Hafnað Afturkallað Óafgreitt
Héraðsdómur Reykjavíkur 41 24 4 13
Héraðsdómur Vesturlands 2 2
Héraðsdómur Vestfjarða 1 1
Héraðsdómur Norðurlands vestra 0
Héraðsdómur Norðurlands eystra 1 1 2
Héraðsdómur Austurlands 0
Héraðsdómur Suðurlands 7 5 2
Héraðsdómur Reykjaness 26 10 2 14
Samtals 78 42 0 7 29