Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 120. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 133  —  120. mál.




Fyrirspurn


til efnahags- og viðskiptaráðherra um endurreisn Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

Frá Vigdísi Hauksdóttur.


     1.      Hafa verið gerðar ráðstafanir til að endurreisa Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta, sbr. lög nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta?
     2.      Ef svo er, telur ráðherra að ríkisábyrgð sé á sjóðnum?
     3.      Hvernig á að tryggja hagsmuni þjóðarinnar í einkareknu bankakerfi svo að ekki þurfi að koma til ríkisábyrgðar vegna tryggingarsjóðsins í framtíðinni?