Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 130. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 143  —  130. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um veittar áminningar og skipun tilsjónarmanna.

Frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.



     1.      Hversu margar áminningar hafa sl. 5 ár verið veittar embættismönnum, forstöðumönnum ríkisstofnana og öðrum starfsmönnum ríkisins?
     2.      Hversu margar stofnanir ríkisins hafa fengið skipaða tilsjónarmenn með rekstri eða annarri starfsemi sl. 5 ár?


Skriflegt svar óskast.