Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 137. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 150  —  137. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um kynningu á breyttu fyrirkomulagi í 10. bekk.

Frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.



    Hvernig hefur ráðuneytið staðið að því að kynna foreldrum og skólastofnunum á grunn- og framhaldsskólastigi breytt fyrirkomulag í 10. bekk, m.a. vegna samræmdra prófa samkvæmt lögum um grunnskóla?