Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 143. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 158  —  143. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um ferðasjóð Íþróttasambands Íslands.

Frá Birki Jóni Jónssyni.


     1.      Hvernig skiptist úthlutun ferðasjóðs Íþróttasambands Íslands eftir kjördæmum á árinu 2008?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að efla ferðasjóð Íþróttasambands Íslands í framtíðinni?