Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 150. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 166  —  150. mál.




Fyrirspurn


til efnahags- og viðskiptaráðherra um meint brot á gjaldeyrisreglum.

Frá Ásbirni Óttarssyni.


     1.      Hver er heildarupphæð þeirra viðskipta sem eru til skoðunar hjá Seðlabankanum þar sem grunur leikur á að brotið hafi verið gegn gjaldeyrisreglum?
     2.      Hversu margir einstaklingar annars vegar og lögaðilar hins vegar eru til skoðunar og hver er hlutur hvors hóps um sig í heildarviðskiptunum?
     3.      Hver er samsetning lögaðila eftir atvinnustarfsemi?
     4.      Yfir hvaða tímabil nær skoðun Seðlabankans á meintum brotum?


Skriflegt svar óskast.