Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 172. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 191 — 172. mál.
til félags- og tryggingamálaráðherra um vinnustaði fatlaðra og launakjör.
1. Hversu margir vinnustaðir fatlaðra hafa verið fluttir úr umsjá svæðisskrifstofa málefna fatlaðra til Vinnumálastofnunar síðan það var ákveðið með lögum um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006?
2. Ef tilflutningnum er ekki enn lokið, hvenær er þá áætlað að honum ljúki og hvað hefur valdið töfum á málinu?
3. Hvað hafa margir vinnustaðir fatlaðra gert kjarasamninga í samræmi við samkomulag Alþýðusambands Íslands og Hlutverks – samtaka um vinnu og verkþjálfun frá maí 2006 um laun og réttindi fatlaðra starfsmanna? Hvaða vinnustaðir greiða starfsmönnum laun í samræmi við ákvæði þeirra?
4. Hafa sumir vinnustaðir ekki enn lokið slíkum samningum og ef svo er, hvað veldur því? Hvernig er launum og réttindum fatlaðra starfsmanna háttað á þeim stöðum sem hafa ekki enn gert kjarasamninga?
5. Hefur ráðuneytið beitt áhrifum sínum til að þau mikilvægu réttindi sem felast í kjarasamningunum nái til allra vinnustaða fatlaðra?
Skriflegt svar óskast.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 191 — 172. mál.
Fyrirspurn
til félags- og tryggingamálaráðherra um vinnustaði fatlaðra og launakjör.
Frá Atla Gíslasyni.