Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 177. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 199  —  177. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um þýðingarvinnu.

Frá Jónínu Rós Guðmundsdóttur.



     1.      Hvernig er þýðingarvinnu á vegum ráðuneytisins háttað?
     2.      Er hún að einhverju leyti unnin annars staðar á landinu en á höfuðborgarsvæðinu?
     3.      Er gert ráð fyrir að störfum við þýðingar á vegum ráðuneytisins fjölgi og ef svo er, hvar er reiknað með að þau verði?