Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 178. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 200  —  178. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um stuðning við atvinnulaus ungmenni.

Frá Jónínu Rós Guðmundsdóttur.



    Hefur verið gripið til aðgerða til að styðja atvinnulaus ungmenni markvisst til náms í framhaldsskóla? Ef ekki, hefur verið íhugað að fara í slíkar aðgerðir, hugsanlega í samstarfi við félags- og tryggingamálaráðuneytið?