Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 188. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 210  —  188. mál.




Fyrirspurn



til dómsmála- og mannréttindaráðherra um fækkun héraðsdómstóla.

Frá Gunnari Braga Sveinssyni.



     1.      Ef héraðsdómstólum verður fækkað, verður þá áfram gert ráð fyrir þinghaldi á þeim stöðum þar sem þeir verða aflagðir? Ef svo er, hver er áætlaður kostnaður við það?
     2.      Verði af fækkun héraðsdómstóla, hyggst ráðherra þá beita sér fyrir endurgreiðslu á kostnaði til þeirra sem þurfa að sækja þjónustu dómstólanna um langan veg, svo sem ferðakostnaði, uppihaldi og þess háttar?