Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 190. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 212  —  190. mál.




Fyrirspurn



til dómsmála- og mannréttindaráðherra um álag á dómara héraðsdómstóla.

Frá Gunnari Braga Sveinssyni.



    Hvernig er álag á dómara héraðsdómstóla reiknað út og hvað telur ráðherra að skýri eftirfarandi mun á álagi árin 2002–2008 (samkvæmt formúlu dómstólaráðs):
    Héraðsdómur Vesturlands 95,04 á dómara,
    Héraðsdómur Suðurlands 92,2 á dómara,
    Héraðsdómur Norðurlands vestra 87,6 á dómara,
    Héraðsdómur Austurlands 84,7 á dómara,
    Héraðsdómur Reykjaness 76,3 á dómara,
    Héraðsdómur Vestfjarða 73,4 á dómara,
    Héraðsdómur Reykjavíkur 70,5 á dómara,
    Héraðsdómur Norðurlands eystra 66 á dómara?


Skriflegt svar óskast.