Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 215. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 239  —  215. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um upptöku evru.

Frá Ólöfu Nordal.



     1.      Er hafin vinna í ráðuneytinu við að meta kosti og galla á upptöku evru, í ljósi umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu?
     2.      Hvaða áhrif hefði upptaka evru á lán með verðtryggingu?
     3.      Hvaða áhrif hefði upptaka evru á stöðu Íbúðalánasjóðs og lánasafn hans?
     4.      Hvernig þyrfti peningastefnan að vera ef taka á upp evru sem gjaldmiðil?


Skriflegt svar óskast.