Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 223. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 248  —  223. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um námslán til skólagjalda á háskólastigi.

Frá Önnu Pálu Sverrisdóttur.



     1.      Telur ráðherra eðlilegt að ríkissjóður borgi í raun meira með hverjum nemanda í einkareknum háskóla heldur en opinberum, með því að námslán til skólagjalda eru niðurgreidd um helming af ríkinu?
     2.      Ef svo er ekki, hyggst ráðherra þá gera eitthvað í málinu?