Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 252. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 288  —  252. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um laun og eignir skattgreiðenda og fjölda þeirra.

Frá Tryggva Þór Herbertssyni.



     1.      Hversu margir bætast í hóp skattgreiðenda samkvæmt tillögu ríkisstjórnarinnar, sem hefur verið kynnt, um að afnema tengingu persónuafsláttar við neysluverðsvísitölu (sem hefði leitt til 6.600 kr. hækkunar frádráttarins um næstu áramót) og í stað þess að hækka persónuafsláttinn um 2.000 kr. sem leiðir til fjölgunar skattgreiðenda í lægsta tekjuhópnum?
     2.      Hversu margir skattgreiðendur er áætlað að verði á næsta ári með mánaðartekjur:
                  a.      119.000–200.000 kr.,
                  b.      200.000–650.000 kr.,
                  c.      650.000–1.000.000 kr.,
                  d.      1.000.000 og meira?
     3.      Hversu mikla skatta og útsvar er áætlað að þessir tekjuhópar greiði á næsta ári?
     4.      Hversu margir skattgreiðendur, einstaklingar og hjón, eiga hreinar eignir sem nema 90 millj. kr. og meira og hvernig skiptast þeir í eftirfarandi aldurshópa:
                  a.      25–50 ára,
                  b.      50–67 ára,
                  c.      67 ára og eldri?


Skriflegt svar óskast.