Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 132. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 300 — 132. mál.
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur um íslenskt sjónvarpsefni og kvikmyndagerð.
Óskað var eftir upplýsingum frá Ríkisútvarpinu, Stöð 2, Skjá einum og Kvikmyndamiðstöð Íslands um þau atriði sem fyrirspurnin lýtur að.
1. Hver hefur verið árleg þróun í framleiðslu íslensks sjónvarpsefnis frá árinu 2005, mælt í mínútum?
Eftirfarandi tafla sýnir hversu mikið Ríkisútvarpið og aðrir framleiðendur framleiddu af íslensku dagskrárefni sem frumflutt var í sjónvarpinu á árabilinu 2005–2008, mælt í mínútum. Sveiflur milli ára skýrast m.a. af tíðni og lengd útsendinga frá íþróttaviðburðum.
Á Stöð 2 hefur þróunin í mínútum talið hefur verið lítil á árunum 2005–2009 og hefur hún ráðist mest af framboði á dagbundnum fréttatengdum útsendingum. Aukning hefur orðið í framleiðslu á leiknu innlendu efni og skemmti- og fræðsluefni.
Innlent efni í mínútum talið 2005–2009:
Taflan sem Skjár einn sendi ráðuneytinu sýnir að nokkuð hefur dregið úr framleiðslu á íslensku efni hjá sjónvarpsstöðinni frá árinu 2006. Miklar sveiflur eru á milli ára en hlutur íslensks efnis hefur aukist það sem af er þessu ári.
Íslenskt efni í klukkustundum talið 2005–2009:
2. Hver hefur verið árleg þróun framlaga til kvikmynda, sjónvarpsmynda og heimildamynda frá árinu 2005 og hversu margar myndir hafa verið gerðar á þessum tíma?
Með samkomulagi fjármálaráðherra og menntamálaráðherra við félög í kvikmyndaiðnaði frá 14. nóvember 2006 var samþykkt stefnumörkun til að efla íslenska kvikmyndagerð. Framlag í Kvikmyndasjóð hefur þróast með eftirfarandi hætti:
Í eftirfarandi yfirliti er fyrst og fremst um að ræða myndir sem Kvikmyndasjóður hefur styrkt. Árlega eru þó framleiddar fleiri heimildarmyndir og sjónvarpsmyndir en hér eru taldar upp. Oft reynist erfitt að draga mörkin á milli áhuga- og atvinnumennsku. Kvikmyndamiðstöð Íslands telur að í eftirfarandi töflu séu taldar með flestar þær myndir sem unnar eru af fagfólki á sviði kvikmyndalistar sem hefur kvikmyndagerð að aðalstarfi.
Rétt er að vekja athygli á að árið 2008 er um að ræða fimm leiknar myndir í fullri lengd, þar sem um viðameiri framleiðslu er að ræða með þátttöku erlendra aðila. Hið sama gildir um fjórar myndir 2009. Utan þessa hafa íslenskir aðilar átt aðild að þónokkrum myndum á sl. árum sem minnihlutaframleiðendur á grundvelli evrópska samframleiðslusamningsins.
Fjölda frumsýninga á ári hverju er erfitt að áætla þar sem fjármögnun tekur mislangan tíma og því getur liðið töluverður tími frá því að vilyrði fyrir styrk er gefið út af Kvikmyndasjóði og þar til að greiðslu hans kemur.
3. Hversu mörg störf hafa fallið árlega undir kvikmyndagerðarlistina hér á landi frá árinu 2005?
Samtök íslenskra kvikmyndaframleiðanda hafa tekið saman tölur um fjölda þeirra sem starfa að kvikmyndagerð á Íslandi. Samkvæmt upplýsingum frá samtökunum hefur störfum fjölgað úr 170 í 300 á tímabilinu, eða alls um 130 störf frá árinu 2005.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 300 — 132. mál.
Svar

| Framleiðandi | 2005, mín. | 2006, mín. | 2007, mín. | 2008, mín. |
| RÚV | 68.000 | 68.973 | 63.576 | 59.857 |
| Aðrir | 5.166 | 14.858 | 6.596 | 21.961 |
| Samtals | 73.166 | 83.831 | 70.172 | 81.818 |
Á Stöð 2 hefur þróunin í mínútum talið hefur verið lítil á árunum 2005–2009 og hefur hún ráðist mest af framboði á dagbundnum fréttatengdum útsendingum. Aukning hefur orðið í framleiðslu á leiknu innlendu efni og skemmti- og fræðsluefni.
Innlent efni í mínútum talið 2005–2009:
| 2005, mín. | 2006, mín. | 2007, mín. | 2008, mín. | 2009, mín. | |
| Þáttagerð | 15.595 | 13.263 | 9.714 | 8.283 | 6.964 |
| Annað | 5.433 | 1.893 | 507 | 1.068 | 1.131 |
| Fréttatengt | 52.101 | 57.341 | 30.216 | 28.044 | 23.440 |
| Alls án fréttatengds efnis | 21.028 | 15.156 | 10.221 | 9.351 | 8.095 |
| Samtals | 73.129 | 72.497 | 40.437 | 37.395 | 31.535 |
Taflan sem Skjár einn sendi ráðuneytinu sýnir að nokkuð hefur dregið úr framleiðslu á íslensku efni hjá sjónvarpsstöðinni frá árinu 2006. Miklar sveiflur eru á milli ára en hlutur íslensks efnis hefur aukist það sem af er þessu ári.
Íslenskt efni í klukkustundum talið 2005–2009:
| 2005, klst. | 2006, klst. | 2007, klst. | 2008, klst. | 2009, klst. | |
| Íslenskt efni | 175 | 321 | 107 | 88 | 105 |
| Aukning/minnkun, klst. | 146 | -214 | -19 | 17 |
2. Hver hefur verið árleg þróun framlaga til kvikmynda, sjónvarpsmynda og heimildamynda frá árinu 2005 og hversu margar myndir hafa verið gerðar á þessum tíma?
Með samkomulagi fjármálaráðherra og menntamálaráðherra við félög í kvikmyndaiðnaði frá 14. nóvember 2006 var samþykkt stefnumörkun til að efla íslenska kvikmyndagerð. Framlag í Kvikmyndasjóð hefur þróast með eftirfarandi hætti:
| 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | |
| Kvikmyndasjóður, heild | 313,4 | 372,4 | 490,0 | 660,0 | 590,0 |
| Leiknar myndir í fullri lengd | 208,4 | 267,4 | 310,0 | 340,0 | 360,0 |
| Leikið sjónvarpsefni | 15,0 | 15,0 | 50,0 | 80,0 | 87,0 |
| Stutt- og heimildamyndir | 90,0 | 90,0 | 100,0 | 110,0 | 112,5 |
| Samframleiðsla | 30,0 | 30,0 | 30,0 |
Í eftirfarandi yfirliti er fyrst og fremst um að ræða myndir sem Kvikmyndasjóður hefur styrkt. Árlega eru þó framleiddar fleiri heimildarmyndir og sjónvarpsmyndir en hér eru taldar upp. Oft reynist erfitt að draga mörkin á milli áhuga- og atvinnumennsku. Kvikmyndamiðstöð Íslands telur að í eftirfarandi töflu séu taldar með flestar þær myndir sem unnar eru af fagfólki á sviði kvikmyndalistar sem hefur kvikmyndagerð að aðalstarfi.
| 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | |
| Leiknar myndir í fullri lengd | 5 | 6 | 5 | 7 | 7 |
| Stutt- og heimildamyndir | 9 | 3 | 5 | 14 | 19 |
| Leikið sjónvarpsefni | 4 | 3 | 1 | 4 | 5 |