Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 189. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 309 — 189. mál.
dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um kostnað
við meðdómendur.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hve margir sérfróðir meðdómendur eru á bak við áætlaðan 39.867.330 kr. rekstrarkostnað héraðsdómstólanna og um hvers konar sérfræðiþekkingu er hér að ræða?
Leitaði var eftir upplýsingum frá dómstólaráði vegna þessarar fyrirspurnar og byggist svarið á upplýsingum frá ráðinu.
Áætlaður kostnaður vegna launa meðdómenda á árinu 2009 tekur mið af raunkostnaði vegna sérfróðra meðdómenda árið 2008. Heildarkostnaður var þá 36,1 millj. kr. Sú fjárhæð var greidd til 93 einstaklinga. Af þeim eru um 46% verk- eða byggingafræðingar, 23% læknar, 18% sálfræðingar og félagsráðgjafar, 6% endurskoðendur og viðskiptafræðingar, 4% lögfræðingar og 3% voru greidd til annarra starfsstétta.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 309 — 189. mál.
Svar