Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 119. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 317  —  119. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur um kostnað við skilanefndir banka.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver er áfallinn kostnaður við skilanefndir Kaupþings, Íslandsbanka og Landsbanka, sundurliðað eftir:
     a.      launum og öðrum fríðindum hverrar skilanefndar,
     b.      innlendum sérfræðikostnaði,
     c.      erlendum sérfræðikostnaði?


    Enginn kostnaður hefur fallið á efnahags- og viðskiptaráðuneytið eða forvera þess, viðskiptaráðuneytið, vegna starfa skilanefnda.
    Þess var óskað að Fjármálaeftirlitið (FME) veitti upplýsingar um þann kostnað sem kynni að hafa fallið á þá stofnun og byggist eftirfarandi svar á upplýsingum frá FME.
    Verktakakostnaður FME vegna skilanefnda Kaupþings banka, Glitnis banka og Landsbankans er á tímabilinu október 2008 til og með apríl 2009 samtals kr. 318,9 millj. kr., sjá sundurliðun. Um er að ræða greiðslur samkvæmt verksamningum sem FME gerði við skilanefndirnar. Fjárhæðirnar eru án virðisaukaskatts þar sem FME fékk hann endurgreiddan. Annar kostnaður af störfum skilanefnda er á vegum bankanna sjálfra og færist sem hluti af rekstrarkostnaði þeirra. FME hefur ekki nánari upplýsingar um rekstrarkostnað hinna föllnu banka.

     Sundurliðun:
Skilanefnd Glitnis 93.826.750 kr.
Skilanefnd Landsbankans 116.864.161 kr.
Skilanefnd Kaupþings 108.175.901 kr.

    Lýst hefur verið kröfum í bú gömlu bankanna vegna framangreinds kostnaðar.