Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 153. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 318 — 153. mál.
efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Ásbjarnar Óttarssonar um húsnæðislán.
Viðskiptabankarnir Glitnir hf., Landsbanki Íslands hf. og Kaupþing banki hf. voru almenn hlutafélög sem skráð voru á markaði þar til í október 2008. Þó svo að Fjármálaeftirlitið, á grundvelli laga nr. 125/2008, hafi gripið inn í rekstur þeirra voru þeir eftir sem áður viðskiptabankar á samkeppnismarkaði. Viðskiptabankar lúta reglum laga um fjármálafyrirtæki og laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og reglum settum á grundvelli þeirra, m.a. um meðferð trúnaðarupplýsinga.
Íslandsbanki hf., NBI hf. og Arion banki hf. eru einnig hlutafélög og þótt ríkissjóður eigi hlutabréf í þeim lúta þau lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Fer fjármálaráðherra með hluti ríkissjóðs í þessum viðskiptabönkum.
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur ekki undir höndum neinar upplýsingar um starfsemi einstakra fyrirtækja á fjármálamarkaði. Eftirlit með starfsemi á fjármálamarkaði er í höndum Fjármálaeftirlitsins samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, utan lausafjáreftirlits sem Seðlabanki Íslands hefur á sinni könnu.
Ráðuneytið ritaði Fjármálaeftirlitinu bréf þann 6. nóvember sl. og óskaði eftir því að það gæfi upplýsingar um þau atriði sem spurt er um á þskj. 169. Svör Fjármálaeftirlitsins eru eftirfarandi:
1. Um hve háa fjárhæð voru húsnæðislán gömlu bankanna afskrifuð við kaup nýju bankanna á þeim?
Fjármálaeftirlitið telur sér ekki heimilt að veita upplýsingar um uppgjör á milli gömlu og nýju bankanna, sbr. ákvæði 13. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Þó má benda á að nýju bankarnir keyptu fyrrgreind lán á ákveðnu verði. Í kaupverðinu fólust ekki eiginlegar afskriftir heldur afföll af bókfærðu verði sem geta stafað m.a. af almennu vaxtastigi, greiðslugetu eða tryggingastöðu.
2. Hvað má gera ráð fyrir að ríkisbankarnir og Íbúðalánasjóður gjaldfæri háar afskriftir vegna niðurfærslu húsnæðislána til einstaklinga?
Fjármálaeftirlitið telur sig ekki geta svarað spurningunni þar sem óljóst er við hvað er átt og til hvaða niðurfærslu er vísað.
3. Hversu háar verða beinar afskriftir annars vegar og óbeinar afskriftir hins vegar?
Fjármálaeftirlitið telur sig ekki geta svarað spurningunni þar sem óljóst er til hvaða afskrifta er vísað.
4. Hvaða reglur gilda um hámark afskrifta hjá einstaklingum og hjónum eða sambýlisfólki og hverjar verða væntanlegar viðmiðunarfjárhæðir?
Ekki er kveðið á um hámarksafskriftir hjá einstaklingum og hjónum eða sambýlisfólki í þeim reglum sem eru undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins.
5. Hversu háar fjárhæðir verða væntanlega færðar á biðreikning (greiðslujöfnunarreikning) og hve stór hluti þeirrar fjárhæðar afskrifaður?
Lög um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins (almenn greiðslujöfnun o.fl.) tóku gildi í lok síðasta mánaðar. Enn er ekki ljóst hve stór hluti greiðenda muni koma til með að nýta sér heimildir samkvæmt lögunum ásamt því að óljóst er hver þróun verður á nýrri greiðsluvísitölu. Fjármálaeftirlitið telur sig því ekki geta svarað viðkomandi spurningu.
6. Má gera ráð fyrir að ríkissjóður þurfi að hækka eiginfjárframlag sitt til bankanna og Íbúðalánasjóðs vegna fyrrgreindra afskrifta og ef svo er, hve mikið?
Fjármálaeftirlitið lagði mat á rekstrarhæfi og fjárhagsstöðu nýju bankanna eftir að hafa farið yfir viðskiptaáætlanir þeirra og fjármagnsþörf. Liður í mati á bönkunum var að gera álagspróf sem mældi gjaldfærni þeirra og lausafé til að sjá hvort fjármögnun þeirra og fjárhagur væri fullnægjandi. Alvarlegustu hættur sem steðja að nýju bönkunum, að mati Fjármálaeftirlitsins, eru útlánaáhætta og lausafjáráhætta. Útlánaáhættan stafar fyrst og fremst af óvissu um gæði útlána bankanna. Lausafjáráhættan stafar m.a. af óvissu um fjárstreymi frá eignum sem færðar hafa verið til þeirra og hversu mjög þeir eru háðir skammtímafjármögnun. Fjármálaeftirlitið telur að vegna þess hve þessi áhætta er mikil dugi ekki að meta hlutfall eiginfjár einungis með hefðbundnu sniði. Fjármálaeftirlitið hefur á grundvelli mats og rekstrarhæfis nýju bankanna gert tilteknar lágmarkseiginfjárkröfur til þeirra sem teljast háar miðað við það sem þekkist alþjóðlega og hærra en innri viðmið þeirra segja til um. Þá sýna álagspróf Fjármálaeftirlitsins að nýju bankarnir þola langvarandi efnahagslægð (e. Prolonged Deep Recession) eins og hún er skilgreind af Fjármálaeftirlitinu í samvinnu við Seðlabanka Íslands. Til viðbótar þessu hefja nýju bankarnir rekstur með umtalsvert lausafé, það er stofnfé frá íslenska ríkinu. Þeir þola því að dráttur verði á að fé fyrir eignir sem færðar hafa verið til þeirra skili sér samhliða því að útlán aukist. Samkvæmt framansögðu er ekki gert ráð fyrir að hækka þurfi eiginfjárframlag ríkisins til bankanna umfram þær fjárhæðir sem fyrirliggjandi áform segja til um.
Hvað varðar Íbúðalánasjóð hefur eiginfjárþörf ekki verið metin á sambærilegan hátt og unnið var að varðandi nýju bankana. Rétt er að hafa í huga að íbúðaveðlán sjóðsins voru áhættuminni en hjá bönkum og sparisjóðum vegna takmarkana í útlánareglum sjóðsins, bæði hvað varðar veðhlutföll og hámarksfjárhæðir, og enn fremur vegna þess að sjóðurinn lánaði ekki gengisbundin lán.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 318 — 153. mál.
Svar