Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 297. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Prentað upp.

Þskj. 343  —  297. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um nám grunnskólabarna í framhaldsskólum.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.



     1.      Er það stefna ráðherra að færa kostnað við fjarnám grunnskólabarna í framhaldsskólum til sveitarfélaga frá 1. janúar 2010?
     2.      Telur ráðherra ásættanlegt að framhaldsskólaáfangar séu kenndir af grunnskólakennurum?
     3.      Hvernig hyggst ráðherra bregðast við því að fjölmörg grunnskólabörn í 9. og 10. bekk hafa lokið námsáföngum í grunnskóla en geta ekki hafið nám í framhaldsskólum vegna ákvarðana ráðuneytisins um niðurskurð, nema með fyrrgreindum aðgerðum?


Skriflegt svar óskast.