Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 150. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 371 — 150. mál.
efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Ásbjörns Óttarssonar um meint brot á gjaldeyrisreglum.
1. Hver er heildarupphæð þeirra viðskipta sem eru til skoðunar hjá Seðlabankanum þar sem grunur leikur á að brotið hafi verið gegn gjaldeyrisreglum?
Heildarfjárhæð þeirra viðskipta sem Seðlabankinn er með til athugunar vegna brota á reglum nr. 1130/2008 og nr. 880/2009 um gjaldeyrismál er samtals 57.557.286.955 kr.
2. Hversu margir einstaklingar annars vegar og lögaðilar hins vegar eru til skoðunar og hver er hlutur hvors hóps um sig í heildarviðskiptunum?
Samtals eru lögaðilar 110 (91,93% af heildarfjárhæð) og einstaklingar 134 (8,07% af heildarfjárhæð).
3. Hver er samsetning lögaðila eftir atvinnustarfsemi?
Því miður er ekki, á þessu stigi, hægt að veita upplýsingar um samsetningu þeirra lögaðila sem til skoðunar eru.
4. Yfir hvaða tímabil nær skoðun Seðlabankans á meintum brotum?
Frá setningu gjaldeyrisreglnanna 28. nóvember 2008 til 1. október 2009.
Vert er að nefna að fjöldi mála og heildarfjárhæðir munu aukast umtalsvert þegar fram líða stundir að því er Seðlabankinn telur. Þannig eru um 100 ný mál sem bíða frekari úrvinnslu hjá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans. Þau mál sem nú eru til skoðunar hafa auk þess ekki verið fullrannsökuð og því er ljóst að heildarfjárhæð meintra brota á reglum um gjaldeyrismál mun verða umtalsvert hærri.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 371 — 150. mál.
Svar