Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 217. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 373 — 217. mál.
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn Jóns Gunnarssonar um samgönguframkvæmdir vegna uppbyggingar í Vatnsmýri.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða samgönguframkvæmdir þarf að ráðast í vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar háskólasjúkrahúss og annarrar uppbyggingar í Vatnsmýri?
2. Hver er áætlaður kostnaður við þær?
Á undanförnum missirum og árum hafa ýmis byggingaráform verið nefnd í Vatnsmýri sem öll eiga það sammerkt að vera mjög umferðarskapandi. Ein þeirra, Háskólinn í Reykjavík, eru þegar komin til framkvæmda. Hin eru háskólasjúkrahús og fyrirhuguð 15.000 manna byggð auk skrifstofu- og verslunarhúsnæðis í Vatnsmýri sem fyrirhugað er að komi í stað flugvallarins ef starfsemi hans verður hætt.
Óvíst er hvort breyting á starfsemi Landspítala muni hafa umtalsverð áhrif á umferð. Þorri starfsemi Landspítalans er þegar við Hringbraut þótt flytja eigi starfsemi frá Borgarspítala á lóðina við Hringbraut og ná með því faglegu og rekstrarlegu hagræði. Nú þegar býr stór hluti starfsmanna Landspítalans í göngu- eða hjólafæri við sjúkrahúsið og lóðin er vel tengd leiðakerfi strætisvagna. Þá má benda á að nú er töluvert um að starfsmenn þurfi að fara milli Fossvogs og Hringbrautar í sínu daglega starfi, en sú umferð mun hverfa með sameiningu spítalastarfseminnar við Hringbraut.
Fyrirhuguð uppbygging á lóð Landspítalans er í samræmi við aðalskipulag Reykjavíkur.
Ráðuneytinu er ekki kunnugt um að gerð hafi verið heildstæð athugun á lausn á umferðarmálum svæðisins ef til þessara framkvæmda kemur. Á meðan skipulag svæðisins liggur ekki endanlega fyrir er ekki gerlegt að áætla kostnað við framkvæmdir í umferðarmálum vegna áforma sem ekki hafa verið skilgreind til hlítar. Það er einnig spurning hvort umferðarvandamál sem stafa af fyrirhugaðri uppbyggingu verði leyst með hefðbundnum aðferðum. Eins og kunnugt er hefur Reykjavíkurborg skipulagsvaldið í Vatnsmýri, þó með þeim takmörkunum sem leiðir af hagsmunum Reykjavíkurflugvallar, sbr. sérstaka bókun við staðfestingu aðalskipulags Reykjavíkur og svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins.
Ekki er hægt að svo stöddu máli að áætla kostnað við framkvæmdirnar enda liggur umfang þeirra ekki fyrir. Þó má benda á að í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001–2024 eru ráðgerð Öskjuhlíðargöng og Fossvogs-/Kópavogsgöng sem ætlað er að tengja Vatnsmýri Kringlumýrarbraut og áfram til suðurs á Reykjanesbraut í Fífuhvammi.
Áætlaður framreiknaður kostnaður úr gögnum svæðisskipulagsins við þessi tvenn göng og tilheyrandi mislæg gatnamót er um 25 milljarðar kr. Í svæðisskipulaginu er enn fremur rætt um Holtsgöng milli Vatnsmýrar og Sæbrautar en kostnaður hefur ekki verið áætlaður.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 373 — 217. mál.
Svar