Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 113. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 428  —  113. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Eyrúnar Ingibjargar Sigþórsdóttur um endurskoðun raforkulaga.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Er ráðherra tilbúinn að beita sér fyrir endurskoðun á ákvæði 8. mgr. 12. gr. laga nr. 65/2003 á þann hátt að tekið verði til skoðunar að heimila afnám tengigjalds við sértækar aðstæður og þá sem aðgerð í úrlausn á bættu raforkuöryggi?

    Landsnet ber ábyrgð á rekstri flutningskerfisins og ber samkvæmt raforkulögum að tengja við flutningskerfið alla þá sem eftir því sækjast, enda uppfylli þeir tæknileg skilyrði fyrir tengingu og greiði tengigjald samkvæmt ákvæðum í gjaldskrá. Í 8. mgr. 12. gr. raforkulaga er kveðið á um að krefjast skuli greiðslu ef tenging nýrra virkjana eða stórnotenda við flutningskerfi veldur auknum tilkostnaði annarra notenda kerfisins. Þá er og kveðið á um að með sama hætti skuli taka tillit til þess ef tenging leiðir til hagkvæmari uppbyggingar eða nýtingar flutningskerfisins. Tenging nýrra virkjana eða stórnotenda hefur að sjálfsögðu kostnað í för með sér, en ákvæðinu er ætlað að taka af tvímæli um að sú tenging megi ekki auka verulega kostnað annarra notenda flutningskerfisins.
    Ráðuneytinu hefur borist erindi Vesturverks ehf. þar sem krafist er að raforkulögum verði breytt þannig að Landsnet fái lagalega heimild til að fella niður tengigjald vegna Hvalárvirkjunar. Ráðuneytið leitaði eftir afstöðu Landsnets til erindisins og í umsögn bendir fyrirtækið á að við núverandi lagaumhverfi telji fyrirtækið ekki mögulegt að fella niður tengigjöld einstakra viðskiptavina vegna þeirra áhrifa sem það hefði á almenna gjaldskrá. Þá er bent á að lagabreytingar í þessu efni kalli augljóslega á aðrar fjármögnunarleiðir, t.d. niðurgreiðslur úr ríkissjóði eða álagningu einhvers konar raforkujöfnunargjalda. Ráðuneytinu hefur enn fremur borist áskorun frá Ísafjarðarbæ, Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Orkubúi Vestfjarða þar sem þeim eindregnu tilmælum er beint til ríkisstjórnarinnar að hún beiti sér fyrir því að tengigjöld Hvalárvirkjunar verði greidd úr ríkissjóði.
    Í samræmi við ákvæði raforkulaga er starfandi nefnd til að endurskoða raforkulögin. Þeirri endurskoðun á að ljúka fyrir 31. desember 2010. Erindi Vesturverks hefur verið kynnt nefndinni og mun hún taka afstöðu til þess hvort lagðar verði til breytingar á 8. mgr. 12. gr. sem og öðrum greinum raforkulaga. Þegar tillögur nefndarinnar liggja fyrir verður tekin afstaða til þeirra.
    Þá er rétt að benda á að skipaður hefur verið ráðgjafahópur til að fara yfir fyrirliggjandi tillögur Landsnets um leiðir til að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum. Hópnum er jafnframt falið að leggja mat á það til hvaða aðgerða þurfi að grípa til að bæta samkeppnisstöðu Vestfjarða með tilliti til möguleika svæðisins til áframhaldandi atvinnuuppbyggingar og fjalla um mismunandi möguleika á að nýta raforku til atvinnuuppbyggingar á Vestfjörðum á næstu árum. Hópnum er falið að skila ráðherra greinargerð fyrir lok ársins en honum ber í störfum sínum að hafa samráð við sveitarfélög á Vestfjörðum.