Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 57. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 491  —  57. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, með síðari breytingum.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund þau Sigurberg Björnsson og Veru Sveinbjörnsdóttur frá samgöngu- og sveitarstjórnarmálaráðuneytinu, Hrafnkel Gíslason forstjóra og Björn Geirsson lögfræðing frá Póst- og fjarskiptastofnun.
    Umsagnir bárust frá Neytendasamtökunum, Símanum hf., Póst- og fjarskiptastofnun og Neytendastofu.
    Tilgangur þessa frumvarps er tvíþættur, annars vegar að lækka álagningarprósentu (gjaldhlutfall) jöfnunargjalds í jöfnunarsjóð alþjónustu og hins vegar að innleiða ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 544/2009 frá 18. júní 2009 um breytingar á reglugerð nr. 717/2007 frá 27. júní 2007, um reiki í almennum farsímanetum innan bandalagsins, og á tilskipun 2002/21EB. Reikireglugerðin var formlega innleidd í íslenskan rétt með reglugerð nr. 1046/2008. Tilgangur reikireglugerðarinnar er að ná fram öflugri neytendavernd og um leið tryggja samkeppni milli rekstraraðila farsímaneta og að smásöluverð fyrir reikiþjónustu innan EES endurspegli á sanngjarnan hátt undirliggjandi kostnað sem felst í að veita þessa þjónustu.
    Fram kom á fundi nefndarinnar með hagsmunaaðilum nauðsyn þess að innleiða breytingar á reikireglugerðinni sem fyrst. Boðaðar breytingar eru til þess fallnar að efla neytendavernd og styrkja réttarstöðu neytenda gagnvart fjarskiptafyrirtækjum með margvíslegum hætti. Með þessum breytingum geta farsímafyrirtæki fengið reikiþjónustu á EES-svæðinu á betri kjörum sem leiðir til lækkaðs kostnaðar fyrir neytendur á ferðum erlendis, en þekkt vandamál er að háir reikningar hafa komið til eftir símnotkun erlendis. Nefndin telur boðaðar breytingar til bóta þar sem þær munu styrkja stöðu neytenda á fjarskiptamarkaði meðal annars í formi hagstæðari kjara.
    Nefndin fjallaði einnig um tillögu um lækkun á álagningarprósentu jöfnunargjalds í jöfnunarsjóð alþjónustu. Fram kom á fundi nefndarinnar að álagningarprósentan hefði verið hækkuð úr 0,12% í 0,65% með lögum nr. 143/2007, sem var gert til mæta útgjaldaaukningu sem varð þegar úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála úrskurðaði Símanum hf. ákveðið framlag úr sjóðnum vegna hluta af kostnaði fyrirtækisins við uppbyggingu gagnaflutningsþjónustu. Nú er svo komið að ekki hefur verið sótt um meiri framlög úr sjóðnum. Nefndin telur því eðlilegt að lækka álagningarprósentuna eins og gerð er tillaga um í frumvarpinu.
    Björgvin G. Sigurðsson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Guðmundur Steingrímsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 18. des. 2009.



Björn Valur Gíslason,


form., frsm.


Róbert Marshall.


Oddný G. Harðardóttir.



Árni Þór Sigurðsson.


Ásbjörn Óttarsson.


Árni Johnsen.