Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 257. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 505 — 257. mál.
um frv. til l. um umhverfis- og auðlindaskatta.
Með frumvarpinu er lagt til að innheimtur verið skattur af sölu á raforku og heitu vatni auk skatts af tilgreindum flokkum á fljótandi jarðefnaeldsneyti. Tilgangurinn er að afla aukinna tekna fyrir ríkissjóð sem nemur 4,7 milljörðum kr.
Skattur á heitt vatn.
Þriðji minni hluti bendir á að með frumvarpinu er lögð til skattlagning frá öfugum enda. Hún ætti að vera næst auðlindinni, og væri það í anda stefnu Framsóknarflokksins. Ríkisstjórnin gæti rétt eins sett skatt á útseldan fisk í fiskbúðum í stað þess að innheimta auðlindaskatt af sjávarauðlindinni.
Kostnaðarsamt er að fara í eftirlit með þeirri framkvæmd sem lögð er til í frumvarpinu. Ríkisskattstjóri benti nefndinni á við meðferð málsins að allt eftirlit yrði erfiðara ef frumvarp ríkisstjórnarinnar yrði að lögum. Um er að ræða fjölmargar lágar tölur vegna raforkugjaldsins, sem yrðu á bilinu 40–50 kr. á hvern greiðanda í hverjum mánuði, mismunandi eftir notendum.
Við umfjöllun í nefndinni kom fram ábending frá ríkisskattstjóra um að umsýsla og skráarhald tengt fyrirhuguðum umhverfis- og auðlindasköttum ætti betur heima hjá Fjársýslu ríkisins og tekjubókhaldskerfi þess. Það mál er órætt milli stofnananna tveggja og alls óljóst hvort ráðist verður í kostnað hjá ríkisskattstjóra til að aðlaga kerfi þeirrar stofnunar rétt áður en verkefnin verða færð yfir til Fjársýslunnar með lagabreytingu frá Alþingi í lok janúar 2010. Sýnir þetta dæmi í hnotskurn hvernig málsmeðferðin hefur verið til þessa varðandi skattkerfisbreytingarnar. Málin eru unnin í miklum flýti og undir pressu og bestu leiðir til að útfæra hugmyndirnar hafa ekki verið ræddar. Þá má spyrja hvernig eftirliti verði háttað þótt gera megi ráð fyrir að ríkisskattstjóri fari eftir sem áður með þann hluta.
Skattlagning á sjávarútveg og ferðaþjónustu.
Atvinnulífið fer ekki varhluta af upptöku kolefnisgjalds og má þar helst nefna ferðaþjónustu, sjávarútveg og flutningastarfsemi. Áréttar 3. minni hluti að hlutfall olíukostnaðar af tekjum í sjávarútvegi hefur verið um 17% vegna ársins 2008 og verður nálægt 14% nú í ár en þetta hlutfall hefur verið á bilinu 8–10% fram til ársins 2004. Er hér því um mikinn kostnaðarauka að ræða fyrir sjávarútveginn. Enn fremur vill 3. minni hluti benda á að í Noregi eru nokkrar atvinnugreinar undanþegnar kolefnisgjaldinu, til að mynda fiskiskipaflotinn sem og samgöngur flugvéla og kaupskipa á milli landa.
Nái frumvarpið fram að ganga mun ferðaþjónustuiðnaðurinn verða fyrir miklum skakkaföllum enda munu hækkanirnar bitna á hópbifreiðafyrirtækjum sem setið hafa eftir án mótvægisaðgerða vegna fyrri hækkana og má ætla að um 222 millj. kr. kostnaðarauka sé að ræða fyrir allar hópbifreiðar á Íslandi nái frumvarp þetta fram að ganga sem og hækkanir á olíu- og bensíngjaldi samkvæmt frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Er þá ekki með talinn kostnaðarauki vegna hækkunar á bifreiðagjöldum og tryggingagjaldi. Að öllu töldu er um að ræða um 600 millj. kr. hækkun á ársgrundvelli.
Það er álit 3. minni hluta að hlúa verði að hvoru tveggja sjávarútveginum og ferðamannaiðnaðinum í því árferði sem hér ríkir enda afla þessir atvinnuvegir gjaldeyristekna og skapa störf um landið allt. Telur 3. minni hluti að hér sé um mikið hagsmunamál fyrir þjóðarbúið að ræða og fara verði varlega í auknar álögur þeirra greina sem hér um ræðir.
Hækkun á bensíni og olíu fyrir heimili landsins – landsbyggðarskattur.
Í I. kafla frumvarpsins er lagt til að gjald verði lagt á fljótandi jarðefnaeldsneyti, þ.e. gas- og dísilolíu, bensín, flugvéla- og þotueldsneyti og brennsluolíu. Með upptöku þessa gjalds er áætlað að rúmlega 2,5 milljarðar kr. skili sér í ríkissjóð á hverju ári og hafi verðlagsáhrif sem nemur 0,07%.
Ljóst er að mati 3. minni hluta að skattlagning sem þessi mun koma þungt niður á heimili landsins sem nú þegar hafa þurft að þola gríðarlega tekjuskerðingu. Enn fremur má nefna að hvort tveggja olíu- og bensíngjald voru hækkuð fyrr á þessu ári og nú liggur jafnframt fyrir að hækka skuli þau gjöld enn frekar nái frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum fram að ganga. Samanlagt nema þessar hækkanir um 19 kr. á hvern lítra dísilolíu eða um 11,1% og 26,1 kr. á hvern lítra af bensíni eða um 15,5% á einu ári. Miðað við meðalnotkun bifreiða er um að ræða árlegar hækkanir upp á 38.000 kr. fyrir dísilbíl og 52.000 kr. fyrir bensínbíl. Jafnframt bendir 3. minni hluti á að þessar hækkanir skila sér út í vísitölu neysluverðs og hafa þar með áhrif á höfuðstóla verðtryggðra lána. Mun tilkoma þessa gjalds, ásamt öðrum álögum, auka mjög allan flutningskostnað sem án efa mun skila sér út í verðlag á landsbyggðinni og hafa hagsmunaaðilar jafnvel gengið svo langt og segja að hér sé um eins konar „samgönguskatt“ að ræða. Hafa verður í huga að oft verður fólk sem býr úti á landi að sækja atvinnu og þjónustu um langan veg.
Það er álit 3. minni hluta að þessar hækkanir komi illa við landsbyggðina og geti haft í för með sér ákveðna mismunun.
Skattur á raforku.
Í II. kafla frumvarpsins er lagt til að lagður verði skattur á sölu á raforku og heitu vatni, 0,12 kr. á hverja kílóvattstund af seldri raforku og 2,0% af smásöluverði á heitu vatni.
Líkt og með skattlagningu heita vatnsins bendir 3. minni hluti á að með frumvarpinu er lögð til skattlagning á raforku frá öfugum enda.
Um aðrar athugasemdir 3. minni hluta, svo sem um kostnað og eftirlit með framkvæmdinni, vísast til kaflans hér að framan um skattlagningu á heitu vatni.
Þriðji minni hluti veltir hins vegar upp þeirri spurning hvernig endurgreiðslum til heimila á köldum svæðum verði háttað?
Verið að flækja kerfið.
Með málatilbúnaði ríkisstjórnarinnar er verið að gera kerfið kostnaðarsamara og óskilvirkara auk þess sem flækjustig eykst til muna. Má þar nefna nokkur atriði:
a. Flóknari skattframkvæmd.
b. Aukið flækjustig í skattkerfinu eykur kostnað þeirra aðila sem selja raforku og heitt vatn beint til notenda bæði vegna auðlindaskattsins og virðisaukaskattsins.
c. Kostnaður skattyfirvalda við eftirlit eykst. Ríkisskattstjóri benti nefndinni á við meðferð málsins að allt eftirlit yrði erfiðara ef frumvarp ríkisstjórnarinnar yrði að lögum.
d. Dýrmætum tíma skattyfirvalda eytt í aukið eftirlit með framkvæmd.
e. Eftirspurn gæti minnkað. Íslenskir neytendur eru mjög virkir og ljóst að eftirspurn er mjög næm fyrir verðbreytingum.
f. Neikvæð áhrif á atvinnustig.
g. Kostnaðarauki fyrirtækja vegna aðlögunar. Fyrirtækin sem selja raforku og heitt vatn í landinu fá skamman frest til að aðlaga tölvu- og bókhaldskerfi sín að þessum breytingum.
Það er álit 3. minni hluta að hækkanir ríkisstjórnarinnar komi illa við ferðamannaiðnaðinn, sjávarútveginn og landsbyggðina í heild og geti haft í för með sér mismunun. Hér er um mikið hagsmunamál fyrir þjóðarbúið að ræða og fara verður varlega í auknar álögur á þær greinar sem hér um ræðir.
Málsmeðferðin hefur verið slík að unnið er í miklum flýti og undir pressu og bestu leiðir til að útfæra hugmyndirnar hafa ekki verið ræddar. Ekki liggur skýrt fyrir hver muni innheimta skattinn þegar hann kemur til innheimtu. Þá er grundvallaratriði að ríkisstjórnin ætlar að skattleggja frá öfugum enda. Því leggur 3. minni hluti til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 505 — 257. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um umhverfis- og auðlindaskatta.
Frá 3. minni hluta efnahags- og skattanefndar.

Alþingi, 17. des. 2009.
Birkir Jón Jónsson.