Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 334. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 506  —  334. mál.




Fyrirspurn



til forseta Alþingis, sbr. 3. mgr. 8. gr. þingskapa, um endurskoðun laga um landsdóm.

Frá Arndísi Soffíu Sigurðardóttur.



     1.      Telur forseti og forsætisnefnd ástæðu til að taka til sérstakrar athugunar það fyrirkomulag við skipan landsdóms að Alþingi kjósi hlutfallskosningu hluta dómara, sbr. þau sjónarmið sem rakin eru í skýrslu vinnuhóps sem forsætisnefnd fól að fara yfir núgildandi lagareglur um eftirlit þingsins með framkvæmdarvaldinu?
     2.      Telur forseti og forsætisnefnd ástæðu til að hefja almenna endurskoðun laga um landsdóm, nr. 3/1963, og laga um ráðherraábyrgð, nr. 4/1963, við þær aðstæður sem nú eru?


Skriflegt svar óskast.