Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 325. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Prentað upp.

Þskj. 518  —  325. mál.
Texti. Undirskrift.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 92/2008, um framhaldsskóla.

Frá menntamálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þórhall Vilhjálmsson og Mörtu Skúladóttur frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, Guðbjörgu Aðalbergsdóttur frá Félagi íslenskra framhaldsskóla, Lárus H. Bjarnason frá Menntaskólanum í Hamrahlíð og Þorkel Einarsson frá Sambandi íslenskra framhaldsskólanema.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Með frumvarpinu er lagt til að framhaldsskólum verði tímabundið heimilt að miða fjárhæð gjalds fyrir nám sem þeir bjóða upp á utan reglubundins starfstíma framhaldsskóla og fjarnám við allt að þriðjung af meðalkennsluframlagi á nemanda samkvæmt fjárlögum miðað við fullt nám. Ef nemandi er ekki í fullu námi skal gjaldið reiknast hlutfallslega miðað við fjölda námseininga. Í lögunum er kveðið á um að hámarksfjárhæð gjaldsins skuli miðast við 10% af meðalkennsluframlagi á nemanda samkvæmt fjárlögum miðað við fullt nám.
    Ákvæði gildandi laga leiðir óbreytt til aukinna útgjalda framhaldsskóla vegna kvöldnáms, sumarnáms og fjarnáms sem ekki er gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010. Nefndin telur mikilvægt að kostnaður komi ekki í veg fyrir að framhaldsskólar geti boðið upp á nám af þessu tagi, enda nauðsynlegt að tryggja að námsúrræði standi öllum landsmönnum til boða óháð búsetu. Þá skiptir miklu máli að fólk geti aukið við menntun sína og þar sem nám í framhaldsskóla er sjaldan lánshæft til Lánasjóðs íslenskra námsmanna þurfa að tryggja að áfram sé mögulegt að bjóða upp á nám utan reglubundins starfstíma. Nefndin áréttar að gæta þurfi að því að skapa sem flestum tækifæri til náms og leggur því áherslu á að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða.
    Nefndin fjallaði sérstaklega um það viðmiðunargjald sem lagt er til að framhaldsskólum verði heimilt að miða við og taldi að ekki væri nægilega skýrt kveðið á um þær fjárhæðir sem um væri að ræða. Í eldri lögum um framhaldsskóla var við það miðað að fjárhæð gjaldsins gæti numið þriðjungi kennslulauna vegna kennslu í öldungadeildum, sbr. enn fremur 8. gr. reglugerðar nr. 279/1997, um fullorðinsfræðslu og endurmenntun. Í framkvæmd gat kostnaður milli skóla því verið mismunandi og því mun við ákvörðun gjaldsins hafa verið miðað við meðalframlag á nemanda eins og það var ákveðið í fjárlögum hvers árs. Í frumvarpi til fjárlaga ársins 2010 er meðalframlag á nemanda ákveðið 758.000 kr. miðað við heilt skólaár. Nefndin leggur því til að í stað þess að miða hámark gjaldsins við allt að þriðjung af meðalframlagi samkvæmt fjárlögum á ársnemanda, þ.e. nemanda sem er í fullu námi á framhaldsskólastigi, er lagt til að gjaldið miðist við námseiningu. Fullt nám í framhaldsskóla miðað við heilt skólaár er 35 einingar. Samkvæmt því telur nefndin rétt að miða við að fjárhæð gjaldsins megi nema allt að 7.500 kr. á hverja námseiningu, en námsáfangar í framhaldsskóla eru almennt þrjár einingar. Nefndin tekur fram að þar sem meðalframlag til hvers skóla er mismunandi þykir rétt að kveða á um að fjárhæð gjaldsins megi þó aldrei vera hærri en sem leiðir af meðalframlagi til hvers skóla í fjárlögum. Sé meðalframlag skóla t.d. ákveðið 730.000 kr. ætti hámarksfjárhæð gjaldsins á hverja námseiningu að taka mið af því og vera 6.883 kr.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:

    1.     gr. orðist svo:
    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
              Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 45. gr. er framhaldsskólum heimilt fram til loka skólaársins 2011–2012 að taka sérstakt gjald af nemendum sem nema má allt að 7.500 kr. á hverja námseiningu en þó aldrei hærra en leiðir af meðalframlagi á ársnemanda hvers skóla eins og það er ákveðið í fjárlögum hvers árs.

    Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Eygló Harðardóttir og Unnur Brá Konráðsdóttir skrifa undir álitið með fyrirvara.
    Anna Pála Sverrisdóttir og Margrét Tryggvadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.


Alþingi, 18. des. 2009.



Oddný G. Harðardóttir,


form., frsm.


Ásmundur Einar Daðason.


Ragnheiður Ríkharðsdóttir,


með fyrirvara.



Eygló Harðardóttir,


með fyrirvara.


Þuríður Backman.


Unnur Brá Konráðsdóttir,


með fyrirvara.


Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.