Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 195. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 548  —  195. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 47/2006, um kjararáð, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta efnahags- og skattanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gunnar Björnsson frá fjármálaráðuneyti, Guðrúnu Zoega frá kjararáði, Magnús Guðmundsson og Gissur Pétursson frá Félagi forstöðumanna ríkisstofnana og Ingveldi Einarsdóttur og Grétu Baldursdóttur frá Dómarafélagi Íslands. Þá hafa borist umsagnir frá Félagi forstöðumanna ríkisstofnana, Seðlabanka Íslands, Dómarafélagi Íslands, kjararáði, Viðskiptaráði Íslands og Félagi starfsmanna Alþingis.
    Í frumvarpinu er lagt til að kjararáði verði á næsta ári óheimilt að endurskoða úrskurði til hækkunar sem kveðnir hafa verið upp á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða II í lögum nr. 47/2006. Rökin fyrir þessari ráðstöfun eru hin sömu og áður og má um það m.a. vísa til álita efnahags- og skattanefndar við afgreiðslu laga nr. 148/2008 annars vegar og laga nr. 87/2009 hins vegar.
    Við umfjöllun nefndarinnar áréttuðu fulltrúar frá Dómarafélagi Íslands og Félagi forstöðumanna fyrri athugasemdir sem fram komu í tengslum við setningu umræddra laga og varða íhlutun löggjafans í launakjör dómara og embættismanna. Dómarafélagið lagði auk þess áherslu á að við launaákvarðanir yrði gætt jafnræðis meðal þeirra er undir ráðið heyra. Þá ræddi nefndin áhrif frumvarpsins á launakerfi ríkisins og störf kjararáðs.
    Ábendingar komu fram um að orðalag 2. efnismgr. 1. gr. frumvarpsins væri óskýrt og af því yrði ekki ráðið með fullnægjandi hætti hvort kjararáði bæri við ákvörðun launa nýrra aðila að gæta samræmis við 5–15% launalækkun sem alþingismenn og ráðherrar sættu á grundvelli umrædds bráðabirgðaákvæðis í lögunum eða launaviðmiðs forsætisráðherra, sem kom inn með lögum nr. 87/2009.
    Einnig voru gerðar athugasemdir við það að ákvæði 1. málsl. 1. efnismgr. frumvarpsins yrði bundið við úrskurði sem kveðnir voru upp á árinu 2009 þar sem úrskurður um lækkun launa alþingismanna og ráðherra á grundvelli umrædds ákvæðis til bráðabirgða var kveðinn upp í lok árs 2008 en ekki 2009.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði einnig látið taka til alþingismanna og ráðherra og jafnframt að við endurskoðun eða ákvörðun kjara annarra aðila sem heyra undir ráðið verði gætt innbyrðis samræmis eftir því sem framast er unnt og að teknu tilliti til laga nr. 87/2009. Rökin að baki þessari tillögu eru m.a. þau að gefa kjararáði umbeðið svigrúm til að taka tillit til sérstakra aðstæðna án þess að raska megintilgangi frumvarpsins.
    Meiri hlutinn áréttar að við afgreiðslu umræddra laga taldi efnahags- og skattanefnd að orðalag þeirra veitti kjararáði svigrúm til að taka mið af sérstöðu dómsvaldsins sem meiri hlutinn leggur áherslu á að sé gert.
    Loks leggur meiri hlutinn til að frumvarpið gildi til 30. nóvember 2010 þegar kjarasamningar BSRB o.fl. sem gerðir voru í júlí sl. renna út.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    1. gr. orðist svo:
    Við ákvæði til bráðabirgða II í lögunum bætist ein ný málsgrein, svohljóðandi:
    Til og með 30. nóvember 2010 er óheimilt að endurskoða úrskurði kjararáðs sem kveðnir hafa verið upp á grundvelli 1. málsl. 1. mgr. til hækkunar. Við endurskoðun eða ákvörðun kjara annarra aðila sem heyra undir ráðið skal gætt innbyrðis samræmis eftir því sem framast er unnt og að virtum ákvæðum 8. gr. laga þessara.

Alþingi, 14. des. 2009.



Helgi Hjörvar,


form., frsm.


Lilja Mósesdóttir.


Magnús Orri Schram.



Ögmundur Jónasson.


Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.