Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 195. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 567  —  195. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 47/2006, um kjararáð, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 21. des.)



1. gr.


    Við ákvæði til bráðabirgða II í lögunum bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
    Til ársloka 2010 er óheimilt að endurskoða úrskurði kjararáðs sem kveðnir voru upp á árinu 2009 til hækkunar. Málsgrein þessi gildir ekki um forseta Íslands.
    Við ákvörðun launa nýrra aðila sem heyra undir úrskurðarvald kjararáðs skal gætt samræmis við 1. mgr. ákvæðis þessa.
    

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.