Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 339. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 589 — 339. mál.
til umhverfisráðherra um staðfestingu ráðuneytis á aðalskipulagi sveitarfélaga.
1. Aðalskipulag og breytingar á aðalskipulagi hvaða sveitarfélaga bíða staðfestingar ráðherra? Óskað er eftir lista yfir viðkomandi sveitarfélög ásamt upplýsingum um hve lengi þau hafa beðið staðfestingar, þ.e. hvenær viðkomandi skipulag var samþykkt í sveitarstjórn og hvenær Skipulagsstofnun sendi það til staðfestingar. Einnig er óskað eftir yfirliti yfir staðfestingar ráðherra á aðalskipulagi sveitarfélaga frá 21. desember 2004 til 21. desember 2009, þ.e. lista yfir sveitarfélög og þann tíma sem það tók ráðuneytið að fara yfir málin áður en ráðherra staðfesti aðalskipulagið.
2. Hvað telur ráðherra eðlilegan tíma til að fara yfir aðalskipulag eða breytingar á aðalskipulagi sveitarfélaga áður en ráðherra staðfestir það?
3. Hver er lögformlegur stjórnsýslufrestur sem ráðherra hefur til að staðfesta aðalskipulag sveitarfélags og breytingar á því?
Skriflegt svar óskast.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 589 — 339. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um staðfestingu ráðuneytis á aðalskipulagi sveitarfélaga.
Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.