Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 203. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 592 — 203. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Ólafar Nordal um fjármögnun verkefna af hálfu lífeyrissjóða.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða verkefni eru á forgangslista ríkisstjórnarinnar hvað varðar fjármögnun af hálfu lífeyrissjóða? Hvernig eru þau verkefni valin og hvaða mat er lagt til grundvallar við forgangsröðunina?
Verklegum framkvæmdum sem komu til skoðunar var skipt í þrennt. Í fyrsta lagi framkvæmdir þar sem aflað hefur verið tilskilinna leyfa þótt enn kunni að vera fyrir hendi óvissuþættir, í öðru lagi framkvæmdir sem hafa verið til skoðunar og unnt væri að hleypa af stað með einkaframkvæmd og loks orkutengdar framkvæmdir sem eru til umfjöllunar á ýmsum stigum.
Verkefni þar sem fjármögnun af hálfu lífeyrissjóðanna kæmi til yrðu líklegast framkvæmdir undir formerkjum einkaframkvæmdar.
Verkefni sem hafa komið til skoðunar eru eftirfarandi:
* bygging Landspítala,
* breikkun Suðurlandsvegar,
* uppbygging þjóðgarða og ferðatengdrar þjónustu,
* samgöngumiðstöð/flugstöð í Reykjavík,
* Búðarhálsvirkjun.
Ríkisstjórnin skipaði í júní sl. viðræðunefnd við lífeyrissjóði um fjármögnun framkvæmda. Af hálfu stjórnvalda voru eftirtaldir skipaðir í viðræðunefndina: Ögmundur Jónasson alþingismaður, skipaður án tilnefningar, Ingimar Jóhannsson skrifstofustjóri, samkvæmt tilnefningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri, samkvæmt tilnefningu iðnaðarráðherra, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, samkvæmt tilnefningu samgönguráðherra, Skúli Helgason alþingismaður, samkvæmt tilnefningu forsætisráðherra, og Vilborg Hauksdóttir sviðsstjóri, samkvæmt tilnefningu heilbrigðisráðherra. Formaður nefndarinnar er Þórhallur Arason, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu. Lífeyrissjóðir og aðilar vinnumarkaðarins skipuðu svo níu manna aðgerðahóp sem tekur þátt í viðræðum fyrir þeirra hönd.
Við val á verkefnunum hefur verið horft til þess að framkvæmdir séu arðbærar og stuðli að aukinni atvinnu. Einstakar framkvæmdir verði fjármagnaðar sérstaklega og markaðir tekjustofnar og/eða þjónustusamningur standi undir fjármagnskostnaði vegna framkvæmdanna. Afmörkun einstakra verkefna þar sem fyrirhuguð fjárfesting yrði með formi einkaframkvæmdar stuðlar því ekki að beinni skuldaaukningu ríkissjóðs.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 592 — 203. mál.
Svar