Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 310. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 606  —  310. mál.




Svar



efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Ólínu Þorvarðardóttur um skuldameðferð sjávarútvegsfyrirtækja í bönkum.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hve mikið af skuldum útgerðarfyrirtækja varð eftir í þrotabúum gömlu bankanna þriggja, sundurliðað eftir bönkum?
     2.      Hve stór hluti skulda útgerðarfyrirtækja fluttist yfir í nýju bankana þrjá, sundurliðað eftir bönkum?
     3.      Hvaða verklagsreglur voru viðhafðar við mat á yfirfærslu skulda sjávarútvegsfyrirtækja úr gömlu bönkunum í þá nýju?
     4.      Hafa lán sjávarútvegsfyrirtækja verið afskrifuð eftir bankahrunið og ef svo er, í hve miklum mæli?
     5.      Hafa lán sjávarútvegsfyrirtækja verið fryst eftir bankahrunið og ef svo er, hvaða upphæðir er um að ræða og til hve langs tíma?


    Viðskiptabankarnir Landsbanki Íslands hf., Glitnir hf. og Kaupþing hf. voru almenn hlutafélög skráð á markaði þar til í október 2008. Þó svo að Fjármálaeftirlitið, á grundvelli laga nr. 125/2008, hafi gripið inn í rekstur bankanna voru þeir eftir sem áður viðskiptabankar á samkeppnismarkaði. Viðskiptabankar lúta reglum laga um fjármálafyrirtæki og laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og reglum settum á grundvelli þeirra, m.a. um meðferð trúnaðarupplýsinga.
    NBI hf., Arion banki hf. og Íslandsbanki hf. eru einnig hlutafélög og þótt ríkissjóður eigi, eða kunni að eignast, hlutabréf í einhverjum þeirra, eða öllum, lúta þeir lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Fer fjármálaráðherra með hluti ríkissjóðs í þessum viðskiptabönkum.
    Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur ekki undir höndum neinar upplýsingar um starfsemi einstakra fyrirtækja á fjármálamarkaði. Né hefur það undir höndum upplýsingar um skuldir einstakra viðskiptamanna bankanna. Eftirlit með starfsemi á fjármálamarkaði er í höndum Fjármálaeftirlitsins samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, utan lausafjáreftirlit sem Seðlabanki Íslands hefur á sinni könnu.
    Með tilvísun til þess sem að framan greinir er ekki unnt að veita svar við einstökum liðum fyrirspurnarinnar.