Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 250. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 612 — 250. mál.
efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur um skipan í stjórnir fyrirtækja á vegum skilanefnda.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hefur Fjármálaeftirlitið sett reglur um skipan skilanefnda Landsbankans, Glitnis og Kaupþings banka og bankaráða með tilliti til jafnréttislaga og hefur Fjármálaeftirlitið beint einhverjum tilmælum til þessara aðila um hvernig beri að fara að jafnréttislögum?
2. Hafa fyrrnefndar skilanefndir skipað fólk í stjórnir fyrirtækja og dótturfyrirtækja sem skilanefndirnar hafa tekið yfir að hluta eða öllu leyti? Svar óskast sundurgreint eftir bönkum.
3. Í stjórnir hvaða fyrirtækja hafa skilanefndirnar skipað stjórnarmenn? Hverjir hafa verið skipaðir og hver er skipting þeirra eftir kyni? Hverjir hafa verið skipaðir stjórnarformenn þessara fyrirtækja? Svar óskast sundurgreint eftir bönkum.
4. Hafa skilanefndirnar sett sér reglur um hvernig skipað skuli í stjórnir og taka reglurnar, ef til eru, mið af jafnréttislögum? Svar óskast sundurgreint eftir bönkum.
Viðskiptabankarnir Landsbanki Íslands hf., Glitnir hf. og Kaupþing hf. voru almenn hlutafélög skráð á markaði þar til í október 2008. Þó svo að Fjármálaeftirlitið, á grundvelli laga nr. 125/2008, hafi gripið inn í rekstur bankanna voru þeir eftir sem áður viðskiptabankar á samkeppnismarkaði. Viðskiptabankar lúta reglum laga um fjármálafyrirtæki og laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og reglum settum á grundvelli þeirra, m.a. um meðferð trúnaðarupplýsinga.
NBI hf., Arion banki hf. og Íslandsbanki hf. eru einnig hlutafélög og þótt ríkissjóður eigi, eða kunni að eignast, hlutabréf í einhverjum þeirra, eða öllum, lúta þeir lögum um fjármálafyrirtæki og lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Fer fjármálaráðherra með hluti ríkissjóðs í þessum viðskiptabönkum.
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur ekki undir höndum neinar upplýsingar um starfsemi einstakra fyrirtækja á fjármálamarkaði. Né hefur það undir höndum upplýsingar um hvaða aðilar sitja í stjórnum yfirtekinna fyrirtækja fyrir hönd bankanna. Eftirlit með starfsemi á fjármálamarkaði er í höndum Fjármálaeftirlitsins samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, utan lausafjáreftirlit sem Seðlabanki Íslands hefur á sinni könnu.
Með tilvísun til þess sem að framan greinir sendi ráðuneytið Fjármálaeftirlitinu bréf og óskaði eftir að það tæki saman svör við fyrirspurninni á grundvelli þeirra upplýsinga sem stofnunin kynni að búa yfir.
Svar Fjármálaeftirlitsins er svohljóðandi:
1. Fjármálaeftirlitið hefur ekki sett reglur um skipan skilanefnda Landsbankans, Glitnis og Kaupþings banka og bankaráða með tilliti til jafnréttislaga né hefur Fjármálaeftirlitið beint tilmælum til tilgreindra aðila um hvernig beri að fara að jafnréttislögum. Skipan í skilanefndir tilgreindra banka í október 2008 var með mjög skömmum fyrirvara og gafst ekki tími til að huga að jafnræði hvað varðar kynjahlutföll. Við undirbúning að skipan skilanefnda í þremur fjármálafyrirtækjum í mars 2009 var hins vegar haft í huga að sem jöfnust skipting yrði milli kynja.
2.–4. Vísað er í eftirfarandi upplýsingar með bréfi þessu (bréfi Fjármálaeftirlitsins til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins) sem geyma svör Landsbanka Íslands hf., Glitnis banka hf. og Kaupþings banka hf.
Í bréfi Landsbanka Íslands hf. til Fjármálaeftirlitsins kemur eftirfarandi fram:
Skilanefnd hefur haft aðkomu að skipan í stjórnir nokkurra félaga sem bankinn eignaðist við fullnustu á kröfum sínum. Skilanefnd hefur ekki sett reglur um hvernig skuli skipa í stjórnir enda telur hún mikilvægt að litið sé til aðstæðna og stöðu hvers félags fyrir sig við skipun í stjórn. Við stjórnarskipun hefur skilanefnd leitað liðsinnis einstaklinga sem hafa sérþekkingu á rekstri umrædds/sams konar félags, að teknu tilliti til rekstrarstefnu félagsins, sem skilanefnd telur að séu til þess fallnir að framkvæma markmið skilanefndar með eignarhaldi, þ.e. að auka virði félagsins til hagsbóta fyrir LBI innan ákveðins tímaramma. Þá er og litið til hæfni og reynslu þeirra stjórnarmanna er aðrir eigendur hyggjast/hafa skipað. Við ákvarðanatöku um stjórnarskipan er ávallt tekið tillit til jafnréttissjónarmiða.
Hér að aftan eru tilgreind umrædd félög sem og þeir stjórnarmenn er skilanefnd hefur stutt til stjórnarsetu:
Þá er ótalið eitt félag þar sem LBI tók nýlega yfir meiri hluta hlutafjár. Skilanefnd telur sér ekki fært að greina frá nafni þess félags að svo stöddu enda hefur eigendabreyting ekki verið tilkynnt með formlegum hætti. Þó skal upplýst að fyrir hönd LBI mun taka sæti í stjórn félagsins einstaklingur sem hefur verulega sérþekkingu á rekstri slíks félags en umræddur einstaklingur er starfsmaður LBI.
Fyrirspurnin lýtur að skipun í stjórnir fyrirtækja sem skilanefnd hefur tekið yfir. Til viðbótar þeim hefur skilanefnd skipað stjórnir í hinum ýmsu dóttur- og rekstrarfélögum LBI. Þeir einstaklingar er eiga sæti í umræddum félögum sitja þar sökum stöðu sinnar innan bankans. Takmörkuð starfsemi er í flestum félögum utan Labki Finance Ltd. en þar sitja í stjórn félagsins skilanefndarmenn auk Robert Korne, lögfræðings LBI í Kanada, og Ólafur Þorsteinsson, framkvæmdastjórn LABKI.
Í bréfi Kaupþings til Fjármálaeftirlitsins kemur eftirfarandi fram:
Skilanefnd Kaupþings hefur fylgt þeirri stefnu að skipa stjórnarmenn í innlend fyrirtæki sem heyra undir nefndina samkvæmt ákvörðunum FME um skiptingu eigna á milli Kaupþings og Nýja Kaupþings banka (nú Arion banki/„Arion“). Ekkert þeirra félaga (Circuit Investments ehf., Kirna ehf., Kaupþing fjármögnun ehf. og Tessera Holding ehf.) er í virkum rekstri, heldur er um að ræða dótturfélög skilanefndar.
Þá hefur skilanefndin skipað stjórnarmenn (tímabundið) í stjórn Arion samkvæmt sérstöku samkomulagi við íslenska ríkið, en í kjölfar ákvörðunar skilanefndar um að taka yfir 87% hlutafjár í Arion er gert ráð fyrir að skilanefnd muni skipa fjóra stjórnarmenn hjá Arion til framtíðar litið og er stefnt að því að þar verði um að ræða tvo erlenda sérfræðinga og tvo innlenda sérfræðinga, þar af einn skilanefndarmann. Loks hefur skilanefnd til bráðabirgða skipað þrjá stjórnarmenn í Kaupskil ehf., tilvonandi eignarhaldsfélag utan um hlutafjáreign í Arion, en til stendur að gera breytingar á þeirri stjórn í kjölfar fyrirhugaðrar yfirtöku.
Það hefur því ekki komið til þess að skilanefnd hafi þurft, sem lánveitandi, að skipa stjórnarmenn í innlend félög vegna yfirtöku þeirra í tengslum við fullnustu eða endurskipulagningu.
Í stjórnir hvaða fyrirtækja hafa skilanefndirnar skipað stjórnarmenn? Hverjir hafa verið skipaðir og hver er skipting þeirra eftir kyni? Hverjir hafa verið skipaðir stjórnarformenn þessara fyrirtækja? Svar óskast sundurgreint eftir bönkum?
Hafa skilanefndirnar sett sér reglur um hvernig skipað skuli í stjórnir og taka reglurnar, ef til eru, mið af jafnréttislögum? Svar óskast sundurgreint eftir bönkum.
Í öllum þeim tilvikum sem að framan greinir hefur verið talið æskilegt að skilanefndarmenn sitji í stjórnum framangreindra dótturfélaga, sbr. jafnframt slíka heimild í 6. gr. starfsreglna skilanefndar. Með vísan til þeirrar lagalegu ábyrgðar sem fylgir stjórnarsetu í félögunum hefur m.a. ekki verið talið æskilegt að fela einstökum starfsmönnum bankans slíka stjórnarsetu.
Skilanefnd var skipuð af Fjármálaeftirlitinu og í skilanefnd eins og hún er nú skipuð situr engin kona. Skýrir það ójafna kynjaskiptingu í töflunni hér að framan.
Sem fyrr segir hefur ekki komið til þess að skilanefnd hafi þurft, sem lánveitandi, að skipa stjórnarmenn í innlend félög vegna yfirtöku þeirra í tengslum við fullnustu eða endurskipulagningu. Kæmi til þess mundi skilanefnd hins vegar fylgja því viðmiði, sem samþykkt hefur verið af skilanefnd, að umsjónarmenn lánamála (lánastjórar) taki ekki sæti í stjórnum þeirra félaga sem bankinn á hlutafé í.
Kaupþing banki hf. setti sér jafnréttisáætlun árið 2004 og lítur skilanefnd svo á sem sú áætlun sé enn í fullu gildi að því er varðar starfsmenn skilanefndar.
Frá Skilanefnd Glitnis barst eftirfarandi tafla:
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 612 — 250. mál.
Svar

| Byr | LBI á 7 58% hlut í Byr og fer samkvæmt lögum með 5% atkvæðafjölda. Við stjórnarkjör í Byr studdi LBI A-listann. Á þeim lista sátu í aðalstjórn Sveinn Margeirsson, Arnar Bjarnason, Hörður Árnason, Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Ingunn Guðmundsdóttir og í varastjórn Stefán D. Franklín og Eggert Þór Aðalsteinsson. |
| Eimskip | LBI á 42% hlut í Icelandair. LBI tilnefndi Braga Ragnarsson og Ólaf Helga Ólafsson í stjórn félagsins. |
| Icelandair | LBI á 24 5% hlut í Eimskip. Skilanefnd tilnefndi Pétur Eiríksson í stjórn félagsins. |
Þá er ótalið eitt félag þar sem LBI tók nýlega yfir meiri hluta hlutafjár. Skilanefnd telur sér ekki fært að greina frá nafni þess félags að svo stöddu enda hefur eigendabreyting ekki verið tilkynnt með formlegum hætti. Þó skal upplýst að fyrir hönd LBI mun taka sæti í stjórn félagsins einstaklingur sem hefur verulega sérþekkingu á rekstri slíks félags en umræddur einstaklingur er starfsmaður LBI.
Fyrirspurnin lýtur að skipun í stjórnir fyrirtækja sem skilanefnd hefur tekið yfir. Til viðbótar þeim hefur skilanefnd skipað stjórnir í hinum ýmsu dóttur- og rekstrarfélögum LBI. Þeir einstaklingar er eiga sæti í umræddum félögum sitja þar sökum stöðu sinnar innan bankans. Takmörkuð starfsemi er í flestum félögum utan Labki Finance Ltd. en þar sitja í stjórn félagsins skilanefndarmenn auk Robert Korne, lögfræðings LBI í Kanada, og Ólafur Þorsteinsson, framkvæmdastjórn LABKI.
Í bréfi Kaupþings til Fjármálaeftirlitsins kemur eftirfarandi fram:
Skilanefnd Kaupþings hefur fylgt þeirri stefnu að skipa stjórnarmenn í innlend fyrirtæki sem heyra undir nefndina samkvæmt ákvörðunum FME um skiptingu eigna á milli Kaupþings og Nýja Kaupþings banka (nú Arion banki/„Arion“). Ekkert þeirra félaga (Circuit Investments ehf., Kirna ehf., Kaupþing fjármögnun ehf. og Tessera Holding ehf.) er í virkum rekstri, heldur er um að ræða dótturfélög skilanefndar.
Þá hefur skilanefndin skipað stjórnarmenn (tímabundið) í stjórn Arion samkvæmt sérstöku samkomulagi við íslenska ríkið, en í kjölfar ákvörðunar skilanefndar um að taka yfir 87% hlutafjár í Arion er gert ráð fyrir að skilanefnd muni skipa fjóra stjórnarmenn hjá Arion til framtíðar litið og er stefnt að því að þar verði um að ræða tvo erlenda sérfræðinga og tvo innlenda sérfræðinga, þar af einn skilanefndarmann. Loks hefur skilanefnd til bráðabirgða skipað þrjá stjórnarmenn í Kaupskil ehf., tilvonandi eignarhaldsfélag utan um hlutafjáreign í Arion, en til stendur að gera breytingar á þeirri stjórn í kjölfar fyrirhugaðrar yfirtöku.
Það hefur því ekki komið til þess að skilanefnd hafi þurft, sem lánveitandi, að skipa stjórnarmenn í innlend félög vegna yfirtöku þeirra í tengslum við fullnustu eða endurskipulagningu.
Í stjórnir hvaða fyrirtækja hafa skilanefndirnar skipað stjórnarmenn? Hverjir hafa verið skipaðir og hver er skipting þeirra eftir kyni? Hverjir hafa verið skipaðir stjórnarformenn þessara fyrirtækja? Svar óskast sundurgreint eftir bönkum?
Yfirlit yfir innlend hlutafélög/einkahlutafélög – varamaður (V), formaður (F).
| Dótturfélög | |||
| Circuit Investments ehf. | Jóhannes Rúnar Jóhannesson, Knútur Þórhallsson (V) | ||
| Kirna ehf. | Theodór S. Sigurbergsson, Knútur Þórhallsson (V) | ||
| Kaupþing fjármögnun ehf.* | Theodór S. Sigurbergsson (F), Knútur Þórhallsson, Steinar Þór Guðgeirsson | ||
| Tessera Holding ehf. | Jóhannes Rúnar Jóhannesson, Theodór S. Sigurbergsson | ||
| Kaupskil ehf.** | Steinar Þór Guðgeirsson (F), Jóhannes Rúnar Jóhannesson, Theodór S. Sigurbergsson | ||
| * Ákveðið hefur verið að stjórnarmönnum í félaginu verði fækkað; Theodór S. Sigurbergsson verði einn stjórnarmaður og Steinar Þ. Guðgeirsson varamaður. | |||
| ** Bráðabirgðastjórn. | |||
| Arion banki | |||
| Arion banki hf.*** | Jóhannes Rúnar Jóhannesson, Theodór S. Sigurbergsson, Steinar Þór Guðgeirsson (V) og Knútur Þórhallsson (V) | ||
| *** Bráðabirgðastjórnarmenn. | |||
Hafa skilanefndirnar sett sér reglur um hvernig skipað skuli í stjórnir og taka reglurnar, ef til eru, mið af jafnréttislögum? Svar óskast sundurgreint eftir bönkum.
Í öllum þeim tilvikum sem að framan greinir hefur verið talið æskilegt að skilanefndarmenn sitji í stjórnum framangreindra dótturfélaga, sbr. jafnframt slíka heimild í 6. gr. starfsreglna skilanefndar. Með vísan til þeirrar lagalegu ábyrgðar sem fylgir stjórnarsetu í félögunum hefur m.a. ekki verið talið æskilegt að fela einstökum starfsmönnum bankans slíka stjórnarsetu.
Skilanefnd var skipuð af Fjármálaeftirlitinu og í skilanefnd eins og hún er nú skipuð situr engin kona. Skýrir það ójafna kynjaskiptingu í töflunni hér að framan.
Sem fyrr segir hefur ekki komið til þess að skilanefnd hafi þurft, sem lánveitandi, að skipa stjórnarmenn í innlend félög vegna yfirtöku þeirra í tengslum við fullnustu eða endurskipulagningu. Kæmi til þess mundi skilanefnd hins vegar fylgja því viðmiði, sem samþykkt hefur verið af skilanefnd, að umsjónarmenn lánamála (lánastjórar) taki ekki sæti í stjórnum þeirra félaga sem bankinn á hlutafé í.
Kaupþing banki hf. setti sér jafnréttisáætlun árið 2004 og lítur skilanefnd svo á sem sú áætlun sé enn í fullu gildi að því er varðar starfsmenn skilanefndar.
Frá Skilanefnd Glitnis barst eftirfarandi tafla:
Fulltrúar Glitnis í stjórnum félaga.
| Félag | Fulltrúi/ar Glitnis |
| Glitnir eignarhaldsfélag ehf. | Heimir Haraldsson Kristján Óskarsson Þórdís Bjarnadóttir |
| Steinvirki ehf. | Heimir Haraldsson Kristján Óskarsson Þórdís Bjarnadóttir |
| Litla Fasteignafélagið kt. 550708–940 Framkvæmdastjóri Eiríkur S. Jóhannsson , kt. 080268–4839 |
Heimir V. Haraldsson, stjórnarformaður
Páll Eiríksson , meðstjórnandi Þórdís Bjarnadóttir , meðstjórnandi |
| Á23 ehf. | Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarmaður
Ásmundur Ingvi Ólason , varamaður |
| Lyfjablóm ehf., kt. 540100–3570 Framkvæmdastjóri Eiríkur S. Jóhannsson , kt. 080268–4839 |
Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarmaður
Haraldur Örn Ólafsson , varamaður |
| Eignarhaldsfélagið SK ehf., kt. 680404–3050 | Sama og í Lyfjablómi |
| Eignarhaldsfélagið SK II ehf. kt. 531006–3480 | Sama og í Lyfjablómi |
| Eignarhaldsfélagið SKE ehf., kt. 640904–3990 | Sama og í Lyfjablómi |
| Eignarhaldsfélagið SKE II ehf., kt. 531006–3560 | Sama og í Lyfjablómi |
| Gnúpur fjárfestingarfélag ehf., kt. 580706–1260 | Eftir er að skipa stjórn, verður þó Eiríkur S. Jóhannsson |
| GL Investments ehf. | Heimir Haraldsson Kristján Óskarsson Þórdís Bjarnadóttir |
| Moderna Finance AB | Erla S. Árnadóttir Jóhannes Sigurðsson |
| Försäkringsaktiebolaget Assuransinvest MF | Erla S. Árnadóttir |
| MFG Holding AB | Erla S. Árnadóttir |
| MFG Holding II AB (áður Atlantica AB) | Erla S. Árnadóttir |
| MFG Holding III AB (áður Invik Trading AB) | Erla S. Árnadóttir |
| SAT eignarhaldsfélag ehf. | Heimir V. Haraldsson, formaður stjórnar
Kristján Óskarsson Þórdís Bjarnadóttir |
| Sjóvá Almennar tryggingar hf. | Heimir V. Haraldsson, formaður stjórnar
Kristján Ragnarsson Þórhildur Ólöf Helgadóttir Þórólfur Jónsson |
| SJ eignarhaldsfélag hf. | Heimir V. Haraldsson, formaður stjórnar
Ásmundur Ingvi Ólason Bjarni Þórður Bjarnason Eiríkur S. Jóhannsson Þórólfur Jónsson |
| Stoðir hf. (áður FL Group) | Eiríkur Elís Þorláksson, formaður stjórnar |
| Landic Property hf. | Eiríkur S. Jóhannsson, formaður stjórnar |
| Landic Property Ísland ehf. | Guðbrandur Sigurðsson |
| Askar Capital hf. | Heimir V. Haraldsson, formaður stjórnar
Eiríkur S. Jóhannsson Þórólfur Jónsson |
| Plastprent hf. | Eiríkur S. Jóhannsson, formaður stjórnar Helgi Hólmar Ófeigsson |
| Nopco | Edward Hope, formaður stjórnar
Kristinn Geirsson Victoria Jenkinson |
| All Saints | Einar Sigurðsson |
| Iceland Foods Group | Einar Sigurðsson |
| ISB Holding ehf. | ?, formaður stjórnar
Ólafur Ísleifsson María Björg Ágústsdóttir |