Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 340. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 648 — 340. mál.
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og fjármagn til verkefna.
1. Getur ráðherra upplýst hver staða Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er varðandi fjármögnun verkefna sem samþykkt voru á árinu 2009? Er fjármagn tryggt?
Á grundvelli f-liðar 1. gr., sbr. b-lið 3. gr. reglna nr. 295/2003, um fjárhagslega aðstoð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga, er Jöfnunarsjóði sveitarfélaga heimilt að koma að stofnframkvæmdum við grunn- og leikskólamannvirki hjá sameinuðum sveitarfélögum. Heimildin er byggð á 98. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998, með síðari breytingum, og a-lið 11. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum.
Við útreikning og ákvörðun um mögulega kostnaðarþátttöku sjóðsins í framangreindum framkvæmdum er tekið mið af eðlilegri þörf viðkomandi sveitarfélags hvað grunn- og leikskólarými varðar, svokallaðri „normstærð“, sem tekur mið af fjölda þeirra barna og nemenda í sveitarfélaginu sem skólana sækja. Til frádráttar kemur það grunn- og leikskólarými sem fyrir er á staðnum. Mismunurinn myndar grunn til allt að 50% kostnaðarþátttöku í viðkomandi framkvæmd, að teknu tilliti til „normkostnaðar“. Sé raunkostnaður framkvæmdar lægri en normkostnaður hennar tekur þátttaka Jöfnunarsjóðs mið af raunkostnaði.
Hvað árið 2009 varðar þá voru engar nýjar framkvæmdir samþykktar hjá sjóðnum. Eingöngu var um úthlutanir og greiðslur framlaga að ræða vegna framkvæmda í sameinuðum sveitarfélögum sem samþykktar höfðu verið og voru hafnar fyrir 1. janúar 2009. Gert var ráð fyrir þeim við gerð greiðslu- og rekstraráætlunar sjóðsins fyrir árið 2009. Greiðslurnar gengu í öllum tilfellum eftir að teknu tilliti til framvindu framkvæmdanna.
2. Getur ráðherra upplýst hvort búið er að staðfesta fjármagn til byggingar Flóaskóla eins og heitið var? Ef svo er, hve miklir eru þeir fjármunir?
Í erindi Flóahrepps, dags. 8. nóvember 2008, er gerð grein fyrir þeim vilja íbúa sveitarfélagsins að taka nemendur í 8.–10. bekk grunnskólans heim en þeir nemendur hafa sótt skóla á Selfossi. Óskað var eftir kostnaðarþátttöku Jöfnunarsjóðs í framkvæmdinni á grundvelli b- liðar 3. gr. reglna nr. 295/2003.
Í bréfi Jöfnunarsjóðs til Flóahrepps, dags. 25. mars 2009, er greint frá mögulegri kostnaðarþátttöku sjóðsins í nýframkvæmdum við Flóaskóla.
Í tölvupósti sveitarfélagsins, dags. 5. ágúst 2009, kemur fram að sveitarstjórn hafi samþykkt að hefja framkvæmdir við viðbyggingu Flóaskóla.
Í ljósi yfirstandandi efnahagsástands og mögulegra áhrifa þess á ráðstöfunarfjármagn Jöfnunarsjóðs ákvað ráðuneytið, sbr. bréf til Flóahrepps, dags. 26. ágúst 2009, að fresta ákvörðun um úthlutun framlags til sveitarfélagsins vegna viðbyggingar Flóaskóla þar til niðurstaða lægi fyrir hvað ráðstöfunarfjármagn sjóðsins á árinu 2009 varðaði og fjárlög ársins 2010 hefðu verið samþykkt. Enda lá ákvörðun Flóahrepps um framkvæmdir við Flóaskóla ekki fyrir fyrr en í ágúst 2009 og þar af leiðandi var ekki gert ráð fyrir þeim við gerð greiðslu- og rekstraráætlunar sjóðsins fyrir árið 2009.
Í ljósi þess hvert áætlað ráðstöfunarfjármagn Jöfnunarsjóðs á grundvelli fjárlaga ársins 2010 var liggur nú fyrir ákvörðun ráðuneytisins um úthlutun framlags vegna framkvæmda við I. áfanga viðbyggingar Flóaskóla. Samþykkt kostnaðarþátttaka Jöfnunarsjóðs í þeim framkvæmdum nemur um 33,7 millj. kr. og kemur sú fjárhæð til greiðslu í ár gangi fyrirhugaðar framkvæmdir sveitarfélagsins við I. áfanga verksins eftir.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 648 — 340. mál.
Svar