Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 357. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 650 — 357. mál.
um jöfnun samkeppnisstöðu framleiðslufyrirtækja á landsbyggðinni með endurskoðun á reglum ÁTVR.
Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að taka til endurskoðunar reglur um móttöku og dreifingu ÁTVR í þeim tilgangi að jafna stöðu fyrirtækja á landsbyggðinni.
Tillaga þessi var fyrst flutt á 136. löggjafarþingi en er endurflutt nú. Hún byggist á vinnu starfshóps um fyrirkomulag flutningsjöfnunar sem skipaður var af viðskiptaráðherra árið 2007 og skilaði af sér skýrslu í júlí 2008. Í skýrslunni eru kynntar tillögur nefndarinnar til að jafna flutningskostnað þannig að hann verði fyrirtækjum ekki verulega íþyngjandi. Rannsóknir hafa sýnt að kostnaður við flutning á vöru til og frá fyrirtækjum sem starfa utan helsta þéttbýlissvæðis landsins skekkir samkeppnisstöðu þeirra á innanlandsmarkaði og í útflutningi.
Í reglum ÁTVR um vöruval og sölu áfengis og skilmála í viðskiptum við birgja, nr. 481/ 2008, sem settar eru með heimild í 8. gr. reglugerðar nr. 883/2005 um Áfengis og tóbaksverslun ríkisins, er að finna dæmi um regluverk þar sem flutningskostnaður er íþyngjandi fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni. Þar segir að hverja pöntun skuli afhenda sérstaklega í vöruhúsi ÁTVR í Reykjavík. Samkvæmt reglum þessum hefur ÁTVR eina móttökustöð fyrir áfengi á landinu öllu. Það gefur augaleið að þetta fyrirkomulag skekkir mjög samkeppnisstöðu áfengisframleiðenda á landsbyggðinni þar sem ÁTVR sér um alla dreifingu fyrir framleiðendur sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu.
Í framangreindri 8. gr. reglugerðarinnar er m.a. kveðið á um að reglurnar skuli „tryggja framleiðendum og birgjum áfengis möguleika á að koma vörum í sölu í vínbúðum“. Með því að kveða á um eina móttökustöð er mjög dregið úr möguleikum þeirra framleiðenda sem eru á landsbyggðinni og því augljós brotalöm í regluverkinu. Þessu mætti auðveldlega breyta og ekkert virðist standa því í vegi að ÁTVR taki á móti vörum á fleiri stöðum á landinu, t.d. í hverjum landsfjórðungi. Þannig mætti koma í veg fyrir að vörum yrði ekið fram og til baka um landið með tilheyrandi kostnaði og óþarfa fyrirhöfn. Auk þess starfar fjöldi fólks á landsbyggðinni við framleiðslustörf af þessu tagi en þau störf gætu verið í hættu vegna þessa mismunar á aðstöðu framleiðenda. Fyrir þessari breytingu má færa bæði þjóðhagsleg rök og byggðarök auk þess sem almenn sanngirnissjónarmið hníga að því að reglunum verði breytt, hlutur landsbyggðarinnar réttur og samkeppnisstaða framleiðenda þar styrkt.
Loks er rétt að geta þess að í fyrrnefndri skýrslu starfshóps um fyrirkomulag flutningsjöfnunar kemur fram að veittar hafa verið óformlega undanþágur til afhendingar á öðrum dreifingarstað. Hefur það verið gert á grundvelli undanþáguákvæðis í umræddum reglum sem kveður þó á um að sérstakar aðstæður skuli vera fyrir hendi. Ekki liggur fyrir hvaða aðstæður um ræðir og eðlilegra að hafa reglur sem þessar almennt orðaðar og skýrar. Þá er augljóst af framkvæmdinni og þeim undanþágum sem veittar hafa verið að hægur vandi er að breyta framkvæmdinni.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 650 — 357. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um jöfnun samkeppnisstöðu framleiðslufyrirtækja á landsbyggðinni með endurskoðun á reglum ÁTVR.
Flm.: Kristján Þór Júlíusson, Ásbjörn Óttarsson, Einar K. Guðfinnsson,
Jón Gunnarsson, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Tryggvi Þór Herbertsson.
Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að taka til endurskoðunar reglur um móttöku og dreifingu ÁTVR í þeim tilgangi að jafna stöðu fyrirtækja á landsbyggðinni.
Greinargerð.