Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 306. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 659 — 306. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um stöðugildi á aðalskrifstofum ráðuneyta.
1. Hvaða breyting hefur orðið á fjölda stöðugilda á aðalskrifstofum ráðuneyta árin 1995– 2009, sundurliðað eftir ráðuneytum?
Samkvæmt launavinnslukerfi ríkisins voru 425,5 stöðugildi (ársverk í dagvinnu) á aðalskrifstofum ráðuneytanna árið 1995 en árið 2009 voru ársverk í dagvinnu 511,2. Í meðfylgjandi töflu er yfirlit yfir fjölda ársverka sundurliðað eftir aðalskrifstofum ráðuneyta.
Á tímabilinu voru gerðar skipulagsbreytingar á verkefnum aðalskrifstofa ráðuneytanna sem hafa áhrif á ársverkafjölda þeirra. Árið 1998 var launadeild starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytis flutt til Ríkisbókhalds (nú Fjársýslu ríkisins) og með henni 15 starfsmenn í 13,5 stöðugildum. Við gildistöku laga nr. 51/2002, um brottfall laga nr. 54/1974, um Þjóðhagsstofnun, fluttust tvö stöðugildi frá Þjóðhagsstofnun til fjármálaráðuneytis. Árið 2008 var fjárhagur þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins aðskilin frá aðalskrifstofu ráðuneytisins og fækkaði stöðugildum á aðalskrifstofunni sem því nam, eða um 22 stöðugildi. 1. janúar 2008 tóku gildi ný lög um Hagstofu Íslands þar sem henni var breytt úr ráðuneyti í sjálfstæða stofnun sem heyrði undir forsætisráðuneyti.
Á tímabilinu voru einnig aðrar breytingar gerðar á aðalskrifstofum og verkefnum ráðuneyta. Árið 2007 var rekstur iðnaðarráðuneytis og viðskiptaráðuneytis aðskilinn. Árið 2008 var starfsemi sjávarútvegsráðuneytis annars vegar og landbúnaðarráðuneytis hins vegar sameinuð í eitt sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. 1. október 2009 tók gildi breyting á reglugerð nr. 177/2007, um Stjórnarráð Íslands, þegar heiti viðskiptaráðuneytis var breytt í efnahags- og viðskiptaráðuneyti, heiti dóms- og kirkjumálaráðuneytis var breytt í dómsmála- og mannréttindaráðuneyti, heiti menntamálaráðuneytis var breytt í mennta- og menningarmálaráðuneyti og heiti samgönguráðuneytis var breytt í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti. Á sama tíma tóku gildi ýmsar breytingar á verkefnum og skipulagi ráðuneytanna.
2. Hvaða hreyfingar hafa verið á starfsfólki innan stjórnarráðsins eða til sveitarfélaga vegna flutnings verkefna á tímabilinu?
Fjármálaráðuneytið aflaði eftirfarandi upplýsinga frá aðalskrifstofum ráðuneyta í Stjórnarráðinu.
Árið 1996 voru verkefni grunnskóla flutt frá menntamálaráðuneyti til sveitarfélaga og með þeim eitt stöðugildi.
Árið 2008 fluttust málefni aldraðra, uppbygging og öldrunarþjónusta á hjúkrunarheimilum, lífeyristryggingar almannatrygginga og félagsleg aðstoð og málefni langveikra barna frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytis og með þeim fimm stöðugildi.
Árið 2008 voru ferðamál flutt frá samgönguráðuneyti til iðnaðarráðuneytis og með þeim eitt stöðugildi.
Árið 2008 voru sveitarstjórnarmálefni flutt frá félagsmálaráðuneyti til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og með þeim fimm stöðugildi.
Árið 2009 fluttist Norðurlandaskrifstofa frá forsætisráðuneyti til utanríkisráðuneytis og með henni fjögur stöðugildi. Sama ár fluttust efnahagsmál frá forsætisráðuneyti til efnahags- og viðskiptaráðuneytis og með þeim tvö stöðugildi.
Árið 2009 fluttust neytendamál frá viðskiptaráðuneyti til dómsmála- og mannréttindaráðuneytis og með þeim eitt stöðugildi.
Árið 2009 fluttust bókhalds- og endurskoðunarlög frá fjármálaráðuneyti til efnahags- og viðskiptaráðuneytis og með þeim fjögur stöðugildi.
Fjöldi ársverka í dagvinnu á aðalskrifstofum ráðuneyta 1995–2009.
Upplýsingar úr launavinnslukerfi Fjársýslu ríkisins.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 659 — 306. mál.
Svar

| Ársverk í dagvinnu | Ár | ||||||||||||||
| Ráðuneyti | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 |
| Forsætisráðuneyti | 14,9 | 14,1 | 14,3 | 17,8 | 18,2 | 19,6 | 23,3 | 22,5 | 22,0 | 22,6 | 23,4 | 23,9 | 23,3 | 24,9 | 26,5 |
| Mennta- og menningarmálaráðuneyti | 67,8 | 70,0 | 66,9 | 65,4 | 65,2 | 66,5 | 64,9 | 66,1 | 70,5 | 70,2 | 66,7 | 70,9 | 70,8 | 71,7 | 70,6 |
| Utanríkisráðuneyti | 56,8 | 59,3 | 61,3 | 65,4 | 71,5 | 82,5 | 79,6 | 81,8 | 86,1 | 94,6 | 104,5 | 92,6 | 98,7 | 93,8 | 89,5 |
| Landbúnaðarráðuneyti | 17,1 | 18,1 | 17,2 | 17,3 | 19,2 | 17,4 | 17,2 | 15,2 | 18,0 | 17,7 | 19,0 | 17,9 | 17,1 | ||
| Sjávarútvegsráðuneyti | 16,0 | 16,0 | 17,3 | 17,8 | 19,9 | 18,3 | 17,3 | 18,4 | 18,4 | 18,6 | 20,2 | 18,9 | 20,0 | ||
| Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti | 34,7 | 33,9 | |||||||||||||
| Dómsmála- og mannréttindaráðuneyti | 26,9 | 29,1 | 31,5 | 31,3 | 28,5 | 26,8 | 27,0 | 28,4 | 29,6 | 32,0 | 32,6 | 31,8 | 33,6 | 35,9 | 34,6 |
| Félags- og tryggingamálaráðuneyti | 18,8 | 19,3 | 18,3 | 20,4 | 21,7 | 19,5 | 22,6 | 24,4 | 24,7 | 26,0 | 30,8 | 31,1 | 32,2 | 31,0 | 34,4 |
| Heilbrigðisráðuneyti | 28,9 | 27,5 | 33,1 | 33,9 | 35,3 | 36,9 | 37,0 | 38,3 | 39,5 | 41,6 | 44,0 | 46,5 | 49,7 | 47,4 | 45,9 |
| Fjármálaráðuneyti | 81,9 | 90,0 | 81,8 | 64,7 | 60,7 | 58,8 | 62,1 | 62,9 | 68,2 | 69,3 | 66,3 | 64,6 | 64,2 | 64,9 | 70,0 |
| Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti | 16,0 | 18,6 | 18,5 | 19,6 | 18,6 | 18,8 | 21,3 | 22,3 | 21,3 | 20,8 | 20,4 | 21,4 | 23,4 | 32,1 | 35,1 |
| Iðnaðarráðuneyti | 12,6 | 13,0 | 13,7 | 14,3 | 14,4 | 15,6 | 14,3 | 15,4 | 16,1 | 9,6 | 12,6 | 14,0 | 12,0 | 19,2 | 20,0 |
| Efnahags- og viðskiptaráðuneyti | 12,2 | 12,7 | 14,0 | 13,8 | 12,8 | 12,1 | 11,6 | 11,8 | 11,5 | 17,3 | 15,7 | 15,6 | 17,1 | 18,4 | 20,6 |
| Hagstofa Íslands | 38,2 | 59,7 | 62,2 | 68,9 | 74,1 | 77,6 | 79,3 | 86,7 | 96,6 | 92,7 | 97,8 | 89,5 | 80,0 | ||
| Umhverfisráðuneyti | 17,5 | 21,0 | 21,5 | 21,4 | 22,6 | 26,7 | 25,8 | 27,2 | 28,4 | 28,1 | 28,2 | 27,7 | 28,0 | 29,8 | 30,2 |
| Samtals | 425,5 | 468,3 | 471,7 | 472,1 | 482,7 | 497,0 | 503,5 | 521,2 | 550,8 | 561,1 | 582,3 | 566,4 | 570,0 | 503,8 | 511,2 |