Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 339. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 671  —  339. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Sigurðar Inga Jóhannssonar um staðfestingu ráðuneytis á aðalskipulagi sveitarfélaga.

     1.      Aðalskipulag og breytingar á aðalskipulagi hvaða sveitarfélaga bíða staðfestingar ráðherra? Óskað er eftir lista yfir viðkomandi sveitarfélög ásamt upplýsingum um hve lengi þau hafa beðið staðfestingar, þ.e. hvenær viðkomandi skipulag var samþykkt í sveitarstjórn og hvenær Skipulagsstofnun sendi það til staðfestingar. Einnig er óskað eftir yfirliti yfir staðfestingar ráðherra á aðalskipulagi sveitarfélaga frá 21. desember 2004 til 21. desember 2009, þ.e. lista yfir sveitarfélög og þann tíma sem það tók ráðuneytið að fara yfir málin áður en ráðherra staðfesti aðalskipulagið.

    Eftirfarandi er listi yfir aðalskipulög og breytingar á aðalskipulögum sveitarfélaga sem biðu staðfestingar umhverfisráðherra 22. desember 2009:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


* Aðalskipulag Flóahrepps og breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps var afgreitt með ákvörðun umhverfisráðherra 29. janúar 2010.


    Eftirfarandi er listi yfir staðfestingar umhverfisráðherra á aðalskipulagi sveitarfélaga frá 21. desember 2004 til 21. desember 2009:

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


* Dagafjöldi er reiknaður í excel sem gerir ráð fyrir 360 dögum í ári eða 12 30 daga mánuðum.

     2.      Hvað telur ráðherra eðlilegan tíma til að fara yfir aðalskipulag eða breytingar á aðalskipulagi sveitarfélaga áður en ráðherra staðfestir það?
    Í skipulags- og byggingarlögum, nr. 73/1997, eru ekki tilgreindir tímafrestir varðandi afgreiðslu ráðherra á aðalskipulagi eða breytingu á því og er þannig ekki um að ræða lögbundna afgreiðslufresti ráðherra í þessu sambandi. Ef ekki eru vísbendingar um einhverja ágalla eða annmarka á viðkomandi skipulagstillögu hefur jafnan verið miðað við að afgreiða erindi þessi í ráðuneytinu eigi síðar innan fjögurra til sex vikna frá því að tillaga berst. Ef hins vegar fram koma athugasemdir í umsögn Skipulagsstofnunar varðandi tillöguna eða málsmeðferð hjá sveitarstjórn getur vissulega þurft að kanna málið nánar og fer það þá eftir atvikum og eðli máls hversu langan tíma það tekur. Í þessu sambandi þykir rétt að halda því til haga að aðalskipulag telst til stjórnvaldsfyrirmæla og fellur því ekki innan gildissviðs stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 1. gr. þeirra laga. Það er því atvikabundið hvaða tímamörk geta talist eðlileg fyrir ráðherra að afgreiða aðalskipulag, sbr. og 19. gr. skipulags- og byggingarlaga í þessu sambandi, þótt reynt sé að hraða hverju máli eins og kostur er og innan þeirra tímamarka sem áður er getið.

     3.      Hver er lögformlegur stjórnsýslufrestur sem ráðherra hefur til að staðfesta aðalskipulag sveitarfélags og breytingar á því?
    Líkt og vísað er til í svari við 2. tölul. hér að framan eru tímafrestir fyrir afgreiðslu ráðherra vegna aðalskipulags eða breytinga á því ekki tilgreindir í skipulags- og byggingarlögum, nr. 73/1997. Aðalskipulag er einnig utan stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, sem áður segir og því á t.d. 9. gr. þeirra laga um málshraða ekki við sem slík. Hins vegar er það svo að vegna óskráðra meginreglna stjórnsýsluréttar er leitast við að afgreiða skipulagstillögur eins fljótt og unnt er í ráðuneytinu. Eins og áður greinir hefur verið sett sú viðmiðun í ráðuneytinu að afgreiða mál þessi eigi síðar en innan fjögurra til sex vikna frá því að þau berast ráðuneytinu. Í umfangsmiklum eða flóknum málum getur þó tekið lengri tíma að afgreiða úrlausnarefnið, svo sem ef einstakir þættir þeim tengdir falla innan valdsviðs annarra ráðuneyta, en þá getur ráðuneytið þurft að bíða þess að afstaða eða úrlausn viðkomandi fagráðuneytis liggi fyrir.