Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 381. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 684  —  381. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um rekstur Ríkisútvarpsins ohf.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



     1.      Hver er heildarkostnaður eftirfarandi liða hjá Ríkisútvarpinu ohf. sl. þrjú starfsár, sundurliðað eftir árum miðað við sjónvarp og hljóðvarpsrásir:
                  a.      stjórn Ríkisútvarpsins ohf.,
                  b.      fjármagnskostnaður,
                  c.      fréttadeild,
                  d.      innlend dagskrárdeild,
                  e.      erlend dagskrárdeild,
                  f.      tæknideild,
                  g.      markaðs- og auglýsingadeild,
                  h.      dreifikerfi,
                  i.      safnadeild,
                  j.      leikmyndadeild,
                  k.      annað?
     2.      Hver er heildarkostnaður við kaup á innlendu dagskrárefni frá sjálfstæðum framleiðendum og hvernig skiptist hann eftir verkefnum?
     3.      Hver er heildarkostnaður við gerð innlends dagskrárefnis innan Ríkisútvarpsins ohf. og hvernig skiptist hann eftir verkefnum?
     4.      Hverjir eru starfsmenn Ríkisútvarpsins ohf., skipt eftir deildum, og hvert er starfsheiti þeirra?
     5.      Hver er hlutfallsleg skipting sýningartíma milli eftirfarandi efnisflokka íslensks sjónvarpsefnis á kjörtíma:
                  a.      leikið efni,
                  b.      skemmtiefni,
                  c.      íþróttir,
                  d.      fréttir,
                  e.      fréttatengt efni,
                  f.      heimildarþættir,
                  g.      listir og menning,
                  h.      barna- og unglingaefni,
                  i.      annað, svo sem tónlist, vísindi o.fl.?


Skriflegt svar óskast.



Greinargerð.


    Með fyrirspurn þessari er leitað eftir ítarlegri kostnaðartölum í starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. en fram kemur í ársskýrslum félagsins. Ríkisútvarpið ohf. er í eigu íslenska ríkisins og er ætlað að reka hvers konar útvarpsþjónustu í almannaþágu, sbr. lög nr. 6/2007, um Ríkisútvarpið ohf.
    Fyrirspurninni er jafnframt ætlað að varpa frekara ljósi á innviði Ríkisútvarpsins ohf. sem nú eru flestum huldir. Það er forsenda fyrir auknu faglegu aðhaldi sem hingað til hefur skort verulega á. Hefur það fyrst og fremst komið frá kvikmyndagerðarmönnum sem hafa þekkingu á stofnuninni og vilja henni vel en gagnrýna stjórnun hennar. Út frá þeim gögnum sem óskað er eftir fást til að mynda upplýsingar um skiptingu innlendrar dagskrár. Þá er hægt að meta hvernig þróunin hefur verið í dagskrársetningu innlends efnis á tímabilinu og bera saman við samning um útvarpsþjónustu í almannaþágu sem undirritaður var 23. mars 2007 af þáverandi menntamálaráðherra og útvarpsstjóra og gildir til 31. mars 2012.