Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 191. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 685 — 191. mál.
efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar um íbúðalán í eigu Seðlabanka Íslands.
Fyrirspurnin er svohljóðandi:
1. Hve mikið á Seðlabanki Íslands af íbúðalánum í krónum talið?
2. Hversu mörg lán eru að baki þessari upphæð?
3. Hvert er bókfært verð þessara lána í bókum bankans?
4. Hvaða banki eða bankar settu húsnæðislán sín að veði í bankanum?
1.–3. Seðlabankinn hefur ekki eignast nein íbúðalán og því eru engin slík lán á bókum bankans. Hins vegar hefur bankinn tekið veð í slíkum lánum í tengslum við lánafyrirgreiðslu til einstakra fjármálafyrirtækja.
4. Með vísan til ákvæða í 35. gr. laga nr. 36/2001 telur Seðlabankinn sér ekki heimilt að veita upplýsingar um hvaða bankar eða banki hafi sett húsnæðislán sín að veði í Seðlabankanum.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 685 — 191. mál.
Svar