Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 416. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 733  —  416. mál.




Fyrirspurn



til efnahags- og viðskiptaráðherra um lögfræðiálit um lögmæti gengistryggðra lána.

Frá Eygló Harðardóttur.



     1.      Hefur ráðuneytið aflað lögfræðiálits (eins eða fleiri) um lögmæti gengistryggðra lána?
     2.      Ef svo er ekki, af hverju hefur ráðuneytið ekki aflað slíks álits?
     3.      Ef svo er:
                  a.      Hver er niðurstaða álitsins um lögmæti gengistryggðra lána og rökstuðningur fyrir þeirri niðurstöðu?
                  b.      Var tekið tillit til álitsins við uppgjör ríkisins og kröfuhafa föllnu bankanna um verðmæti lánasafna bankanna?


Skriflegt svar óskast.