Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 439. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 760  —  439. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um tannvernd grunnskólabarna.

Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.



     1.      Hvað er talið að það kosti þjóðarbúið á ári að hefja aftur skólatannlækningar, grunnskólabörnum að kostnaðarlausu?
     2.      Hvað stendur í vegi þess að hefja aftur skólatannlækningar, grunnskólabörnum að kostnaðarlausu?
     3.      Hefur kostnaður þjóðarbúsins af lakari tannvernd skólabarna á síðustu árum verið metinn og ef svo er, hvernig?


Skriflegt svar óskast.