Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 475. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 819  —  475. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um kostnað ríkissjóðs vegna reglugerðar nr. 190/2010.

Frá Kristjáni Þór Júlíussyni.


     1.      Hvað er gert ráð fyrir að margir einstaklingar geti nýtt sér ákvæði reglugerðar nr. 190/2010, um þátttöku sjúkratrygginga í nauðsynlegum tannlækninga- og tannréttingakostnaði sjúkratryggðra vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, sjúkdóma og slysa?
     2.      Hvað eru það margir einstaklingar umfram þann fjölda sem gat nýtt sér eldri reglugerðir um sömu mál?
     3.      Hvað er gert ráð fyrir að greiddar verði út háar fjárhæðir vegna reglugerðarinnar?
     4.      Hversu hærri eru þær fjárhæðir þeim sem gert var ráð fyrir að greiða út samkvæmt eldri reglugerðum um sömu mál?
     5.      Hver eru kostnaðaráhrif 6. gr. reglugerðarinnar?
     6.      Hve há er fjárheimild ársins 2010 til greiðslu kostnaðar samkvæmt reglugerðinni?


Skriflegt svar óskast.